Nýsköpunarvikan: Nýsköpunarhádegi á Norðurlandi

Nýsköpunarhádegi á Norðurlandi eru 30 mínútna streymisviðburðir þar sem Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra fá til sín gesti úr mismunandi atvinnugreinum til að varpa ljósi á það frjóa og spennandi nýsköpunarstarf sem á sér stað á Norðurlandi. Fjallað verður um nýsköpun í ferðaþjónustu, menntamálum, matvælaframleiðslu, hönnun og listum, menningarmálum og fleira. Viðburðirnir eru haldnir í hádeginu kl. 12:00-12:30 alla virka daga á meðan að á Nýsköpunarvikunni stendur.

 

Streymt verður af Facebook viðburðinum Nýsköpunarvikan á Norðurlandi.