Viðamikill gagnagrunnur um menningarmál á Norðurlandi

Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) og Samband sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum (Eyþing) halda utan um viðamikinn gagnagrunn um menningartengda þjónustu á Norðurlandi. Skráning í grunninn er aðilum að kostnaðarlausu og skráning og viðhald upplýsinga í höndum starfsmanna SSNV og Eyþings.

Gagnagrunnurinn er aðgengilegur á heimasíðum SSNV og Eyþings.

Í gagnagrunninum er að finna upplýsingar um hátíðir, húsnæði, hönnunarhús/gallerí, menningarstofnanir, menningarfélög, söfn og setur, tónlist, svæðisbundna fjölmiðla, vinnustofur listamanna og útilistaverk.

Nánari upplýsingar um gagnagrunninn veita Ingibergur Guðmundsson, verkefnastjóri hjá SSNV, ingibergur@ssnv.is og Vigdís Rún Jónsdóttir, verkefnastjóri menningarmála hjá Eyþingi, vigdis@eything.is.