Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra hlýtur verkefnastyrk vegna fjarvinnslustöðva

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur staðfest tillögur valnefndar um verkefnastyrki vegna fjarvinnslustöðva sem veittir eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2018-2024 (aðgerð B.8 - fjarvinnslustöðvar). Að þessu sinni var 24 milljónum króna úthlutað til þriggja verkefna fyrir árin 2019-2020. Þá hafa einnig verið gefin fyrirheit um styrki að heildarupphæð 55 milljónum króna til ársins 2023. Auglýst voru framlög fyrir árin 2019-2020 en heimilt er að styrkja sama verkefni til allt að fimm ára, með fyrirvara um fjárheimildir fjárlaga hvers árs.

Markmiðið með framlögum vegna fjarvinnslustöðva er annars vegar að koma opinberum gögnum á stafrænt form og hins vegar að fjölga atvinnutækifærum á landsbyggðinni.

Við mat á umsóknum var stuðst við þætti eins og íbúaþróun, samsetningu atvinnulífs og atvinnustig og þróun á starfsmannafjölda viðkomandi stofnunar undanfarin ár. Byggðastofnun annast umsýslu verkefnastyrkjanna og verða samningar vegna styrkjanna undirritaðir snemma á nýju ári.

Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra sem staðsett er á Skagaströnd hlaut styrk samtals að upphæð 31,6 milljónir króna fyrir árin 2020-2023. 

Sjá nánar á heimasíðu Byggðastofnunar.