Endurskoðun byggðaáætlunar hafin

Þann 11. júní voru liðin 2 ár frá samþykki byggðaáætlunar 2018-2024. Sá dagur markaði upphaf ferlis endurskoðunar áætlunarinnar. Af því tilefni boðaði samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra til samráðsfundar í Hafnarborg í Hafnarfirði þar sem farið var yfir stöðu byggðamála og samráð um endurskoðunina hófst. Taka á saman grænbók um framkvæmd áætlunarinnar til þessa, hvað vel hefur gengið og hvað má betur fara. Á fundinum voru haldin fróðleg erindi sem tengjast byggðamálum og lýstu framkvæmdastjórar landshlutasamtakanna reynslu af byggðaáætluninni en mikið af þeim verkefnum sem þar er að finna hafa verið unnin í samstarfi við þau. Í framhaldi af fundinum var opnað fyrir almennt samráð um endurskoðun þessa mikilvæga plaggs. Við hvetjum fólk til að kynna sér áætlunina og gera athugasemdir.

Áætlunina er að finna hér.

Hér er að finna yfirlit yfir stöðu verkefna.