Upptaka af sýndarréttarhöldum í máli sakborninga í Illugastaðamorðunum árið 1828

Nú er aðgengileg á vefnum upptaka af „nýjum réttarhöldum“ í máli Agnesar Magnúsdóttur, Friðriks Sigurðssonar og Sigríðar Guðmundsdóttir en þau tvö fyrrnefndu voru hálshöggvin á Þrístöpum 12. janúar 1830 og Sigríður send í ævilanga fangelsisvist í Kaupmannahöfn.

 

Lögfræðingafélag Íslands stóð fyrir þessum áhugaverða viðburði en hann var haldinn þann 9. september 2017 í Félagsheimilinu á Hvammstanga.

 

Lögfræðingafélagið fékk til liðs við sig einvala lið lögfræðinga sem sóttu, vörðu og dæmdu málið upp á nýtt og tvo leikara sem lásu upp úr málsskjölum.

 

Þátttakendur voru: Jónína Sigrún Lárusdóttir formaður Lögfræðingafélags Íslands, kynnir. Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari, sótti málið. Guðrún Sesselja Arnardóttir lögmaður varði Agnesi og Sigríði. Gestur Jónsson lögmaður varði Friðrik. Ingibjörg Benediktsdóttir fv. hæstaréttardómari var forseti dómsins en með henni dæmdu Kolbrún Sævarsdóttir héraðsdómari og Davíð Þór Björgvinsson Landsréttardómari og f.v. dómari við Mannréttindadómstól Evrópu. Leikararnir Jóhanna Vigdís Arnardóttir og Jóhann Sigurðarson lásu úr dómskjölum. Eyrún Ingadóttir sagnfræðingur og frkvstj. Lögfræðingafélags Íslands bjó málið undir flutning og sá um framkvæmd.

 

Lögfræðingafélag Íslands og Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra styrktu upptöku sýndarréttarhaldanna en Landmark kvikmyndagerð sá um upptöku.

 

Upptöku af réttarhöldunum í heild sinni er að finna hér: https://www.youtube.com/watch?v=qPEFAGiukX8&fbclid=IwAR0AVPgq49fvlyknouWnqhyJzP6ZZ58YT0gJjK-MsTqDCR31WAJXsjkNeRE