Taktu þátt í að móta framtíð Norðurlands vestra

Nú stendur yfir vinna við gerð nýrrar Sóknaráætlunar Norðurlands vestra. Í tengslum við vinnuna verða haldnir 3 fundir í landshlutanum sem eru öllum opnir sem áhuga hafa á að hafa áhrif á stefnu landshlutans til ársins 2024. Unnið verður út frá eftirfarandi málaflokkum:

— Menningarmál
— Atvinnuþróun og nýsköpun
— Umhverfismál
— Menntamál og lýðfræðileg þróun

Fundirnir verða haldnir á eftirtöldum stöðum:


Hótel Laugarbakka - 21. ágúst kl. 12:00 – 14.00
Eyvindarstofu á Blönduósi – 21. ágúst kl. 17:00 - 19.00
Félagsheimilinu Ljósheimum í Skagafirði – 22. ágúst kl. 12:00 - 14.00

Við hvetjum sem flesta íbúa til að láta til sín taka, mæta og hafa þannig áhrif á framtíð landshlutans.

Sóknaráætlun Norðurlands vestra er stefnumótandi áætlun sem tekur til starfssvæðis sveitarfélaganna í landshlutanum.
Nú er verið að móta stefnu fyrir árin 2020-2024.

 Upplýsingabæklingur um sóknaráætlun og þá vinnu sem stendur yfir.