Hvert er kolefnisspor Norðurlands vestra?

Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) hafa, fyrst landshlutasamtaka, skrifað undir samning um vinnu við stöðugreiningu á kolefnisspori Norðurlands vestra í heild. Verkefnið mun Umhverfisvöktun ehf. (Environice) í Borgarnesi, með Stefán Gíslason umhverfisstjórnunarfræðing í fararbroddi, vinna fyrir SSNV. Skv. samningnum felst í verkefninu greining á helstu orsakavöldum kolefnislosunar, svo sem í samgöngum, landbúnaði, sjávarútvegi, iðnaði, neyslu íbúa o.fl. Að þeim niðurstöðum fengnum verða greindir möguleikar á annars vegar minnkun á losun kolefnis og hins vegar hvaða mótvægisaðgerðir koma helst til greina í landshlutanum.

Verkefnið er áhersluverkefni Sóknaráætlunar landshluta fyrir árin 2018 og 2019.

Það er von SSNV að með verkefninu verði stigið mikilvægt fyrsta skref í átt að markvissri kolefnisjöfnun svæðisins sem með tímanum skapi tækifæri er koma til með að styrkja byggð í landshlutanum.

Á myndinni sjást Stefán Gíslason, eigandi og stofnandi Umhverfisráðgjafar Íslands ehf. og Unnur Valborg Hilmarsdóttir, framkvæmdastjóri SSNV, undirrita samning um verkefnið á Byggðaráðstefnu Byggðastofnunar í Stykkishólmi 16. október 2018.