Hæfnihringir njóta vinsælda

Aðsóknin í Hæfnihringi – stuðning fyrir konur í fyrirtækjarekstri á landsbyggðinni, hefur farið fram úr björtustu vonum, en nú hafa rúmlega 40 konur skráð sig og munu hefja leik innan skamms í 6 hópum. Verkefnið var sett upp sem samstarfsverkefni milli atvinnuþróunarfélaga og landshlutasamtaka síðastliðið haust.

Að verkefninu standa Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi, Vestfjarðarstofa, Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi eystra, Austurbrú, Samtök sveitarfélaga á suðurlandi og Samtök sveitarfélaga á Suðurnesjum/atvinnuþróunarfélagið Heklan.

Hæfnihringirnir fara fram í gegnum fjarfundarbúnað sem auðveldar konum af öllu landinu að taka þátt. Fundirnir verða 6 talsins, einu sinni í viku í 6 vikur, í þessari umferð þar sem tæpt verður á helstu áskorunum sem konurnar eru að glíma við, svo sem markaðssetning á samfélagsmiðlum og tímastjórnun. Í Hæfnihringjunum fá konurnar tækifæri til að tengjast öðrum konum í svipuðum sporum víðs vegar um landið, mynda tengslanet, deila sín á milli og fá ráð hjá öðrum. Auk þess verða leiðbeinendur hringjanna með viðeigandi fræðslu sem miðuð er út frá þeim áskorunum sem hver hópur á sameiginlegt að standa frammi fyrir. Hæfnihringirnir eru fjármagnaðir af samstarfsaðilunum og stendur því konunum til boða endurgjaldslaust.

 

Fyrir frekari upplýsingar um verkefnið má hafa samband við Sveinbjörgu Rut Pétursdóttur, atvinnuráðgjafa SSNV, á netfanginu sveinbjorg@ssnv.is.