Fýsileikakönnun - almenningssamgöngur

Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og Rannsóknarstofnun Háskólans á Akureyri hafa gert með sér samstarfssamning um vinnu við skoðun á fýsileika þess að koma á fót almenningssamgöngum a vinnusóknarsvæðum á Norðurlandi vestra.

Markmiðið er að komast að því hvort þörf sé á almenningssamgöngum í landshlutanum. Ef svo er hvaða aðilar myndu nýta sér almenningssamgöngur? Á milli hvaða staða er mest þörf á almenningssamgöngum? Hvernig er hugsanlegt að útfæra samgöngurnar svo þær nýtist sem best? Leitast verður við að finna leiðir sem mæta þeim þörfum sem fram koma í greiningu með hagkvæmum og markvissum hætti. Horft verður sérstaklega til nýrra leiða sem kunna að mæta þeim markmiðum.

Rannsóknarstofnun Háskólans á Akureyri leitar að viðmælendum sem stundar daglega vinnusókn innan Norðurlands vestra og gæti e.t.v. nýtt sér almenningssamgöngur innan svæðisins væru þær fyrir hendi. Tekin verða viðtöl við lykilmanneskjur í Austur-Húnavatnssýslu, Skagafirði og Vestur-Húnavatnssýslu. Einnig er stefnt að því að framkvæma þrjú rýnihópaviðtöl með u.þ.b. 6 viðmælendum á hverju svæði.

Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við kolfinna@ssnv.is