Eftirmál óveðursins – opinn fundur

Fundur um eftirmál óveðursins sem gerði fyrir miðjan desember sl. verður haldinn í Víðihlíð fimmtudaginn 13. febrúar kl. 20:00

 

  • Einar Kristján Jónsson, formaður Almannavarnarnefndar Húnavatnssýslna fer yfir viðbrögð almannavarna og það sem að hans mati þarf að bæta úr.

Á fundinum mun hann jafnframt leita upplýsinga frá fundarmönnum um hvað betur megi fara og þurfi að koma inn í almannavarnaráætlun fyrir svæðið.

 

  • Sr. Magnús Magnússon formaður samráðshóps um áfallahjálp í Húnavatnssýslum fer yfir vinnu og viðbrögð samráðshópsins við afleiðingum óveðursins í desember. 

 

  • Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir, sveitarstjóri Húnaþings vestra fer yfir skráningar á tjóni sem bárust til sveitarfélaganna og næstu skref.

 

  • Benedikt Árnason  formaður átakshóps ræðir úrbætur á innviðum í framhaldi af fárviðrinu 10. og 11. desember fer yfir störf nefndarinnar.

 

  • Anna Margrét Jónsdóttir segir frá sameiginlegu útboði á rafstöðvum.

 

 

Lagt verður að ríkisstjórninni að veita fjármagni til að greiða bætur vegna þess umfangsmikla tjóns sem varð á svæðinu, m.a. vegna hrossa sem fórust og afurðataps hjá kúabændum. Það er því mikilvægt að sem mestar og bestar upplýsingar liggi fyrir. Ef einhverjir eiga enn eftir að tilkynna tjón til sveitarfélaganna, eru þeir hvattir til að gera það sem fyrst. Stefnt er að því að að leggja kostnaðarmat á tjónin nú í febrúar.

 

Allir íbúar hvattir til að mæta, sýna samstöðu og leggja sitt af mörkum til að bæta almannavarnir á svæðinu.

 

Búnaðarsamband Húnaþings og Stranda