Atvinnumál kvenna - styrkúthlutun

Nú á dögunum voru veittir styrkir til Atvinnumála kvenna. Ásmundur Einar Daðason úthlutaði styrkjunum og hlutu 44 verkefni styrki að upphæð 40.000.000 króna, en um 300 umsóknir bárust í sjóðinn í ár. Af þessum 44 verkefnum voru fjögur verkefni af Norðurlandi vestra.

Elínborg Erla Ásgeirsdóttir hlaut styrk til að gera viðskiptaáætlun fyrir verkefnið „Lífræn blóm í matinn“. Greta Clough hlaut styrk til hönnunar á húsnæði og markaðssetningu fyrir verkefnið „Stúdíó Handbendi“. Ingveldur Ása Konráðsdóttir hlaut styrk til að gera viðskiptaáætlun fyrir verkefnið „Hólakot hundahótel og þjálfun“. Að lokum hlaut María Eymundsdóttir styrk til að gera viðskiptaáætlun fyrir verkefnið „Hagnýting burnirótar“.

 

SSNV óskar styrkhöfum til hamingju með styrkina.