Fundagerðir

Eftir Sveinbjörg Rut Pétursdóttir 17. ágúst 2026
Hér má nálgast fundargerð á pdf. Fimmtudaginn 13. ágúst 2026, kom stjórn SSNV saman til fundar á Hvammstanga. Hófst fundurinn kl. 13:00. Mætt voru: Magnús Magnússon, Guðmundur Haukur Jakobsson, Jóhanna Ey Harðardóttir, Halldór Jón Sigurðsson, Davíð Birkir Tryggvason og Sveinbjörg R. Pétursdóttir framkvæmdastjóri sem ritaði fundargerð. Dagskrá: Starfsmannamál Uppbyggingarsjóður Norðurlands vestra Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra Haustþing SSNV Niðurstöður vinnustofunnar um græna iðngarða 6 mánaða uppgjör Framlögð mál til kynningar a) Fundargerðir b) Umsagnir Skýrsla framkvæmdastjóra Afgreiðslur Starfsmannamál Starfsfólk SSNV kom til fundar og fór yfir helstu verkefni og ábyrgðarsvið hvers starfsmanns, ásamt stöðu verkefna og verkefnaálagi. Markmið kynningarinnar var að veita stjórn heildstæða yfirsýn yfir starfsemi samtakanna og skapa grundvöll fyrir umræðu um framtíðarskipulag. Stjórn þakkar starfsfólki fyrir greinargóða yfirferð. Stjórn ræddi í framhaldinu verkefni og framtíðarskipulag samtakanna með hliðsjón af þeirri yfirsýn sem fram kom. Stjórn samþykkir að fela framkvæmdastjóra að auglýsa eftir stöðu atvinnuráðgjafa með áherslu á fjárfestingar. 2. Uppbyggingarsjóður Norðurlands vestra Guðlaugur Skúlason og Berglind Björnsdóttir komu til fundar og fóru yfir komandi umsóknarferli Uppbyggingarsjóðs Norðurlands vestra. Stjórn þakkar Guðlaugi og Berglindi fyrir góða yfirferð. 3. Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra Framkvæmdastjóri fór yfir stöðu mála varðandi fyrirhugaða yfirfærslu verkefna Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra, þar á meðal fyrirhugaða fundi og önnur atriði sem tengjast framgangi málsins. Málið var lagt fyrir stjórn til kynningar og umræðu. Stjórn ræddi stöðu málsins og þær breytingar sem fyrirhuguð yfirfærsla kann að hafa í för með sér. Stjórn mun áfram fylgjast með framvindu málsins og þeim áhrifum sem breytingarnar kunna að hafa á sveitarfélögin á Norðurlandi vestra. 4. Haustþing SSNV Framkvæmdastjóri fór yfir undirbúning haustþings SSNV sem halda á 1. október í Húnaþingi vestra. Framkvæmdastjóra falið að hefja undirbúning þingsins í samræmi við samþykktir samtakanna. 5. Niðurstöður vinnustofunnar um græna iðngarða Niðurstöður vinnustofu um græna iðngarða, sem framkvæmdastjóri sat, lagðar fram til kynningar og umræðu. Stjórn telur mikilvægt að áfram verði unnið að því að kortleggja styrkleika, auðlindir, innviði og fjárfestingatækifæri á Norðurlandi vestra og að hagsmunir og tækifæri landshlutans verði sýnileg í þeirri vinnu sem framundan er á landsvísu. Stjórn felur framkvæmdastjóra að fylgja málinu eftir fyrir hönd SSNV. 6. 6 mánaða uppgjör Matthías Rúnarsson, bókari samtakanna, kom til fundar og fór yfir 6 mánaða uppgjör samtakanna. Rekstur er almennt skv. áætlun. Stjórn þakkar Matthíasi fyrir greinargóða yfirferð. 7. Framlögð mál til kynningar a) Fundargerðir Stjórn SSNE, 30. júní 2026. Fundargerðin. Stjórn SSA, 4. júní 2026. Fundargerðin. b) Umsagnir Sviðslistastefna 2026-2030 . Mál nr. S-88/2026. Umsagnarfrestur er til og með 5. ágúst 2026. Hvítbók um byggðamál . Mál nr. S-104/2026. Umsagnarfrestur er til og með 18. ágúst 2026. Forsamráð um efnistök grænbókar um fjarskipti og netöryggi . Mál nr. S-105/2026. Umsagnarfrestur er til og með 21. ágúst 2026. Áform um skipulagsbreytingar lögreglunnar . Mál nr. S-138/2026. Umsagnarfrestur er til og með 18. ágúst 2026. Drög að þingsályktun um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku . Mál nr. S-123/2026. Umsagnarfrestur er til og með 19. ágúst 2026. Breytingar á reglugerðum vegna einföldunar eftirlits. Mál nr. S-113/2026. Umsagnarfrestur er til og með 17. ágúst 2026. Umsögn SSNV um Sviðslistastefnu 2026-2030 samþykkt af stjórn og send inn í Samráðsgátt stjórnvalda. Afgreiðsla málsins er færð til bókar. Stjórn felur framkvæmdastjóra að vinna drög að umsögnum um; Hvítbók um byggðamál, Forsamráð um efnistök grænbókar um fjarskipti og netöryggi, Áform um skipulagsbreytingar lögreglunnar, Drög að þingsályktun um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku og Breytingar á reglugerðum vegna einföldunar eftirlits. 8. Skýrsla framkvæmdastjóra Skýrsla framkvæmdastjóra flutt munnlega. Fleira var ekki tekið fyrir. Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 16.58. Magnús Magnússon, Guðmundur Haukur Jakobsson, Jóhanna Ey Harðardóttir, Halldór Jón Sigurðsson, Davíð Birkir Tryggvason og Sveinbjörg Rut Pétursdóttir.
Eftir Sveinbjörg Rut Pétursdóttir 16. ágúst 2026
Hér má nálgast fundargerð á pdf. Mánudaginn 6. júlí 2026, kom stjórn SSNV saman til fundar á Hvammstanga. Hófst fundurinn kl. 9:00. Mætt voru: Magnús Magnússon, Guðmundur Haukur Jakobsson, Jóhanna Ey Harðardóttir, Einar E. Einarsson, Davíð Birkir Tryggvason og Sveinbjörg R. Pétursdóttir framkvæmdastjóri sem ritaði fundargerð. Dagskrá: Kjör varaformanns Samþykktir og þingsköp SSNV Starfsreglur stjórnar SSNV Skipulag funda stjórnar SSNV Fulltrúi í Stafrænt ráð sveitarfélaga Fulltrúi í stjórn Eims Fulltrúi í stjórn Markaðsstofu Norðurlands Fulltrúi SSNV í fulltrúaráð Brákar hses. Haustþing SSNV Erindi vegna rannsókna á Landsmóti Hestamanna Áhersluverkefni Sóknaráætlunar Norðurlands vestra Vegna samkomulags við ríkið varðandi börn með fjölþættan vanda Starfsmannamál Framlögð mál til kynningar Fundargerðir Umsagnir Skýrsla framkvæmdastjóra Afgreiðslur Kjör varaformanns Skv. grein 4.1 í samþykktum samtakanna skiptir stjórn með sér verkum. Stjórn samþykkir að skipa Jóhönnu Ey Harðardóttur sem varaformann. 2. Samþykktir og þingsköp SSNV Framkvæmdastjóri fór yfir samþykktir og þingsköp SSNV með stjórnarmönnum. 3. Starfsreglur stjórnar SSNV Lögð fram drög að starfsreglum stjórnar. Stjórn samþykkir uppfærðar starfsreglur stjórnar. 4. Skipulag funda stjórnar SSNV Framkvæmdastjóri leggur fram drög að skipulagi funda stjórnar og fasta liði funda. Stjórn samþykkir framlagt fundarskipulag. Stjórnarfundir verða að jafnaði fyrsta þriðjudag hvers mánaðar kl. 9:00. 5. Fulltrúi í Stafrænt ráð sveitarfélaga Stjórn skipar fulltrúa í Stafrænt ráð sveitarfélaga. Stjórn samþykkir að skipa Jóhönnu Ey Harðardóttir í Stafrænt ráð sveitarfélaga til tveggja ára. 6. Fulltrúi í stjórn Eims Stjórn skipar einn aðalmann í stjórn Eims og einn til vara. Stjórn samþykkir að skipa Guðmund Hauk Jakobsson sem aðalmann í stjórn Eims til tveggja ára og Sveinbjörgu Rut Pétursdóttur sem varamann til tveggja ára. 7. Fulltrúi í stjórn Markaðsstofu Norðurlands Skv. samningi um rekstur áfangastaðastofu tilnefnir stjórn SSNV einn aðalmann í stjórn Markaðsstofu Norðurlands og einn til vara. Stjórn samþykkir að skipa Magnús Magnússon sem aðalmann í stjórn Markaðsstofu Norðurlands til tveggja ára og Davíð Birki Tryggvason til vara til tveggja ára. 8. Fulltrúi SSNV í fulltrúaráð Brákar hses. Stjórn skipar fulltrúa SSNV í fulltrúaráð Brákar hses. Stjórn samþykkir að skipa Einar E. Einarsson sem fulltrúa SSNV í fulltrúaráð Brákar hses. til tveggja ára. 9. Haustþing SSNV Samkvæmt starfsáætlun SSNV fyrir árið 2026 er Haustþing SSNV áætlað miðvikudaginn 7. október. Þar sem fjármálaráðstefna sveitarfélaga fer fram í sömu viku er lagt til að finna þinginu nýja dagsetningu. Stjórn samþykkir að Haustþing SSNV fari fram fimmtudaginn 1. október í Húnaþingi vestra og hefjist kl. 14:00. 10. Erindi vegna rannsókna á Landsmóti hestamanna Lögð fram styrkbeiðni vegna rannsókna á efnahagslegum, samfélagslegum og umhverfislegum áhrifum af Landsmóti hestamanna. Stjórn samþykkir styrkbeiðnina og felur framkvæmdastjóra að boða deildarstjóra ferðamáladeildar Háskóla Íslands á Hólum til fundar til að ræða möguleg fleiri rannsóknarverkefni í landshlutanum. 11. Áhersluverkefni Sóknaráætlunar Norðurlands vestra Áhersluverkefni Sóknaráætlunar eru verkefni sem hafa beina skírskotun til sóknaráætlunar landshlutans. Áhersluverkefnin skulu samþykkt af stjórn SSNV og þurfa að hljóta staðfestingu stýrihóps Stjórnarráðsins um byggðamál. Lögð fram tillaga fyrir stjórn að nýju áhersluverkefni. Stjórn samþykkir tillögu að nýju áhersluverkefni sem nefnist “Skemmtiferðaskip á Norðurlandi vestra - samstarf, skipulag og markaðssókn”, með fyrirvara um samþykki stýrihóps Stjórnarráðs um byggðamál. Stjórn samþykkir að ráðstafa eftirstöðvum áhersluverkefnisins „Mótun, innleiðing og eftirfylgni samskiptastefnu fyrir svæðið“, að fjárhæð 1.500.000 kr., til verkefnisins á árinu 2026. Fjármögnun vegna ársins 2027 er vísað til fjárhagsáætlunar komandi árs. 12. Vegna samkomulags við ríkið varðandi börn með fjölþættan vanda Samband íslenskra sveitarfélaga hefur gagnrýnt nýja reglugerð stjórnvalda um börn með fjölþættar stuðningsþarfir og telur að hún samræmist ekki samkomulagi ríkis og sveitarfélaga frá mars 2025 um ábyrgðarskiptingu og fjármögnun þjónustu við þennan viðkvæma hóp barna. Að mati Sambandsins felur reglugerðin í sér að ríkið þrengi einhliða þann hóp barna sem fellur undir samkomulagið og færi þannig kostnað og ábyrgð aftur yfir á sveitarfélög. Málið er lagt fyrir stjórn til kynningar og umræðu. Stjórn SSNV lýsir yfir þungum áhyggjum af nýrri reglugerð mennta- og barnamálaráðuneytisins um þjónustu við börn með fjölþættar stuðningsþarfir. Að mati stjórnar gengur reglugerðin gegn samkomulagi ríkis og sveitarfélaga frá 19. mars 2025 um ábyrgðarskiptingu og fjármögnun þjónustu við þennan viðkvæma hóp barna. Stjórn SSNV tekur undir sjónarmið Sambands íslenskra sveitarfélaga um að með reglugerðinni hafi ríkið einhliða þrengt skilgreiningu á þeim hópi barna sem samkomulagið tekur til og færi þar með kostnað og ábyrgð að nýju yfir á sveitarfélög. Slík breyting er ekki í samræmi við markmið samkomulagsins og skapar verulega óvissu um framkvæmd þjónustunnar. Stjórn SSNV skorar á mennta- og barnamálaráðuneytið að endurskoða reglugerðina í samráði við sveitarfélög og standa við þær skuldbindingar sem ríkið tók á sig með samkomulagi aðila frá mars 2025. Framkvæmdastjóra falið að senda bókunina á mennta- og barnamálaráðherra, þingmenn Norðvesturkjördæmis og framkvæmdastjóra Sambands íslenskra sveitarfélaga. 13. Starfsmannamál Farið var yfir málefni er varða starfsmannahald og önnur atriði sem tengjast starfsfólki SSNV. Sveinbjörg Rut Pétursdóttir vék af fundi undir þessum lið. Stjórn samþykkir að fela formanni að ganga til samninga við Sveinbjörgu Rut Pétursdóttur um starf framkvæmdastjóra SSNV. 14. Framlögð mál til kynningar a) Fundargerðir Stjórn SASS, 5. júní 2026. Fundargerðin . Stjórn stýrihóps stjórnarráðsins um byggðamál, 8. júní 2026. Fundargerðin . Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga, 28. maí 2026. Fundargerðin . Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga, 9. júní 2026. Fundargerðin . Stjórn SSS, 10. júní 2026. Fundargerðin . b) Umsagnir Drög að reglugerð um heilsugæslu . Mál nr. S-110/2026. Umsagnarfrestur er til og með 24. júlí 2026. Sviðslistastefna 2026-2030 . Mál nr. S-88/2026. Umsagnarfrestur er til og með 5. ágúst 2026. Reglugerð um Loftslags- og orkusjóð . Mál nr. S-106/2026. Umsagnarfrestur er til og með 5. ágúst 2026. Hvítbók um byggðamál . Mál nr. S-104/2026. Umsagnarfrestur er til og með 18. ágúst 2026. Forsamráð um efnistök grænbókar um fjarskipti og netöryggi . Mál nr. S-105/2026. Umsagnarfrestur er til og með 21. ágúst 2026. 15. Skýrsla framkvæmdastjóra Skýrsla framkvæmdastjóra flutt munnlega. Fleira var ekki tekið fyrir. Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 12.02. Magnús Magnússon, Guðmundur Haukur Jakobsson, Jóhanna Ey Harðardóttir, Einar E. Einarsson, Davíð Birkir Tryggvason og Sveinbjörg Rut Pétursdóttir.
24. mars 2026
Hér má nálgast fundargerð á pdf. Þriðjudaginn 24. mars 2026, kom stjórn SSNV saman til fundar á Skagaströnd. Hófst fundurinn kl. 9:00. Mætt voru: Einar E. Einarsson, Magnús Magnússon, Guðmundur Haukur Jakobsson, Álfhildur Leifsdóttir, Halldór Gunnar Ólafsson og Sveinbjörg R. Pétursdóttir framkvæmdastjóri sem ritaði fundargerð. Dagskrá: Íslandsstofa Minnisblað frá Markaðsstofu Norðurlands um gönguleiðir Byggðagleraugu SSNV Ársreikningur SSNV Ársþing SSNV Þjónustukönnun - Fyrri hluti: vinnu- og þjónustusókn Ársskýrsla SSNV Erindi frá Pétri Halldórssyni, heilbrigðisfulltrúa Framúrskarandi verkefni á Norðurlandi vestra Ályktanir ársþings SSNV Framlögð mál til kynningar a) Fundargerðir b) Umsagnir Skýrsla framkvæmdastjóra Afgreiðslur Íslandsstofa Arnar Guðmundsson, viðskiptastjóri hjá Íslandsstofu, kom til fundar á Teams og kynnti verkefni á vegum Íslandsstofu þar sem unnið er að því að greina þær virðiskeðjur og fjárfestingartækifæri sem Ísland hefur raunhæfa samkeppnisstöðu í til framtíðar. Verkefnið felur í sér heildstæða kortlagningu á tækifærum til verðmætasköpunar og tengingu þeirra við mismunandi landshluta, innviði og styrkleika. Stjórn þakkar Arnari kærlega fyrir gagnlega og áhugaverða kynningu og góðar umræður um hvernig megi koma tækifærum Norðurlands vestra á framfæri í gegnum sameiginlega upplýsingagátt Íslandsstofu. Magnús Barðdal, verkefnastjóri SSNV, sat fundinn undir þessum lið. Minnisblað frá Markaðsstofu Norðurlands um gönguleiðir Lagt fram erindi frá Markaðsstofu Norðurlands um gönguleiðir á Norðurlandi vestra. Stjórn þakkar Markaðsstofu Norðurlands fyrir erindið. SSNV fór í átaksverkefni með skráningu gönguleiða árin 2020-2021 þar sem 94 leiðir voru skráðar, þ.e.a.s. grunnupplýsingar þeirra: GPS-punktar, myndir og texti, og eru þær nú hýstar á vefsíðunni WIKILOC sem væri ákjósanlegt að nýta. Framkvæmdastjóra falið að koma upplýsingum áleiðis til Markaðsstofunnar. Byggðagleraugu SSNV Stjórn SSNV veitir ár hvert viðurkenninguna Byggðagleraugun til ráðuneytis, stofnunar eða fyrirtæki sem þykir hafa skarað fram úr í fjölgun starfa/verkefna í landshlutanum eða með öðrum hætti stuðlað að uppbyggingu hans. Er viðurkenningunni ætlað að hvetja forsvarsmenn stofnana og fyrirtækja til að horfa með “byggðagleraugunum” á verkefni sinna eininga og nýta þau tækifæri sem gefast til flutnings starfa/verkefna á landsbyggðina í samræmi við áherslur byggðaáætlunar. Tillögur að handhafa Byggðagleraugnanna 2026 lagðar fyrir stjórn. Stjórn samþykkir tillögu að handhafa Byggðagleraugnanna og felur framkvæmdastjóra að hafa samband við viðkomandi í samræmi við umræður. Handhafi Byggðagleraugnanna verður tilkynntur formlega á ársþingi SSNV, miðvikudaginn 8. apríl, á Hótel Laugarbakka. Ársreikningur SSNV Helgi Níelsson, endurskoðandi hjá KPMG kom til fundar við stjórn og fór yfir ársreikning samtakanna fyrir árið 2025. Stjórn þakkar Helga fyrir greinargóða yfirferð á ársreikningnum. Stjórn samþykkir ársreikninginn og vísar til afgreiðslu ársþings. Matthías Rúnarsson, aðalbókari samtakanna, sat fundinn undir þessum lið. Ársþing SSNV Framkvæmdastjóri fór yfir drög að dagskrá fyrir ársþing SSNV. Stjórn þakkar fyrir yfirferðina og samþykkir framlagða dagskrá með áorðnum breytingum sem fram komu á fundinum. Þjónustukönnun - Fyrri hluti: vinnu- og þjónustusókn Byggðastofnun hefur birt nýja skýrslu um vinnu- og þjónustusókn íbúa landsins. Skýrslan byggir á þjónustukönnun sem framkvæmd var árið 2024 meðal tæplega sjö þúsund íbúa utan höfuðborgarsvæðisins og gefur ítarlega mynd af því hvar íbúarnir sækja vinnu og ýmsa þjónustu. Lagt fram til kynningar. Ársskýrsla SSNV Ársskýrsla SSNV fyrir árið 2025 lögð fram til kynningar fyrir stjórn. Erindi frá Pétri Halldórssyni, heilbrigðisfulltrúa Lagt fram til kynningar erindi frá Pétri Halldórssyni, heilbrigðisfulltrúa í kraganum. Framúrskarandi verkefni á Norðurlandi vestra Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra veita árlega viðurkenningar fyrir framúrskarandi verkefni sem fram hafa farið á Norðurlandi vestra árið áður. Viðurkenningar eru veittar í tveimur flokkum: a) Verkefni á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar b) Verkefni á sviði menningar Viðurkenningarnar geta fallið í hlut einstaklinga, hópa, félaga, fyrirtækja eða stofnana á Norðurlandi vestra fyrir framlag sitt í ofangreindum flokkum. Verkefnin einskorðast við að hafa fengið styrk úr uppbyggingarsjóði SSNV. Tillögur um framúrskarandi verkefni lagðar fyrir stjórn. Stjórn samþykkir framlagða tillögu að framúrskarandi verkefnum. Verkefnin verða kynnt á miðlum SSNV og fá viðurkenningu í samræmi við reglur fyrir framúrskarandi verkefni á Norðurlandi vestra. Ályktanir ársþings SSNV Lagðar fram tillögur að ályktunum fyrir ársþing SSNV 2026 sem bárust frá Húnabyggð. Umræður stjórnar um önnur aðkallandi málefni til að leggja fyrir ársþing. Stjórn þakkar Húnabyggð fyrir þær tillögur sem bárust. Stjórn felur framkvæmdastjóra að vinna drög að ályktun um stöðu landshlutans. Framlögð mál til kynningar a) Fundargerðir Stjórn SSH, 16. febrúar 2026. Fundargerðin. Stjórn SSH, 2. mars 2026. Fundargerðin. Stjórn SSNE, 5. mars 2026. Fundargerðin. Stjórn SSA, 20. febrúar 2026. Fundargerðin. Stjórn SASS, 6. febrúar 2026. Fundargerðin. Stjórn SSS, 11. Mars 2026. Fundargerðin. Stjórn Markaðsstofu Norðurlands, 27. janúar 2026. Fundargerðin. b) Umsagnir Frumvarp til laga um flýtingu uppbyggingar raforkuinnviða og einföldun regluverks. Mál nr. S-56/2026. Umsagnarfrestur er til og með 26. mars 2026. Tillaga til þingsályktunar um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Mál nr. 516/2026. Umsagnarfrestur er til og með 7. apríl 2026. Framkvæmdastjóra falið að vinna drög að umsögn um Frumvarp til laga um flýtingu uppbyggingar raforkuinnviða og einföldun regluverks. Skýrsla framkvæmdastjóra Skýrsla framkvæmdastjóra flutt munnlega. Fleira var ekki tekið fyrir. Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 12.26. Einar E. Einarsson, Álfhildur Leifsdóttir, Magnús Magnússon, Guðmundur Haukur Jakobsson, Halldór Gunnar Ólafsson og Sveinbjörg Rut Pétursdóttir.
24. febrúar 2026
Hér má nálgast fundargerð á pdf. Þriðjudaginn 24. febrúar 2026, kom stjórn SSNV saman til fundar á Teams. Hófst fundurinn kl. 9.00. Mætt voru: Einar E. Einarsson, Magnús Magnússon, Guðmundur Haukur Jakobsson, Álfhildur Leifsdóttir, Halldór Gunnar Ólafsson og Sveinbjörg R. Pétursdóttir framkvæmdastjóri sem ritaði fundargerð. Dagskrá: Áhersluverkefni 2026 Afgreiðslur Áhersluverkefni 2026 Stjórn SSNV auglýsti eftir hugmyndum að áhersluverkefnum fyrir árið 2026. Átta tillögur bárust. Um er að ræða 35 milljónir króna sem koma í hlut Norðurlands vestra til úthlutunar vegna viðauka við Sóknaráætlun frá fyrir árið 2026. Stjórn samþykkir eftirfarandi verkefni: 2025-13 TextílLab á Blönduósi 2025-15 Fab-Lab smiðjur á Norðurlandi vestra 2026-01 Bæjarhátíðir 2026-02 Hjartað í Húnaþingi 2026-03 Barnamenningarhátíðin Skúnaskrall 2026-04 Fiðringur á Norðurlandi 2026-05 Rekstur rannsóknainnviða - TextílLab 2026-06 Hafnarhúsið Gestamiðstöð Framkvæmdastjóra falið að senda tillögur að áhersluverkefnum til stýrihóps stjórnarráðsins um byggðamál til samþykktar. Fleira var ekki tekið fyrir. Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 9.45. Einar E. Einarsson, Álfhildur Leifsdóttir, Magnús Magnússon, Guðmundur Haukur Jakobsson, Halldór Gunnar Ólafsson og Sveinbjörg Rut Pétursdóttir.
19. febrúar 2026
Hér má nálgast fundargerð á pdf. Fimmtudaginn 19. febrúar 2026, kom stjórn SSNV saman til fundar á Blönduósi. Hófst fundurinn kl. 12:30. Mætt voru: Einar E. Einarsson, Magnús Magnússon, Guðmundur Haukur Jakobsson, Álfhildur Leifsdóttir, Halldór Gunnar Ólafsson og Sveinbjörg R. Pétursdóttir framkvæmdastjóri sem ritaði fundargerð. Dagskrá: Línustæði, eignarréttur og endurgjald Áhersluverkefni 2026 Kveikjan – framhald á umræðum Framlögð mál til kynningar Fundargerðir Umsagnir Skýrsla framkvæmdastjóra Afgreiðslur Línustæði, eignarréttur og endurgjald Lögð fram til kynningar skýrslan “Línustæði, eignarréttur og endurgjald” sem Torfi Jóhannesson vann fyrir SSNV og SSV. Í samantekt Torfa er leitast við að varpa ljósi á þær leiðir sem nágrannalönd Íslands hafa farið við að greiða landeigendum fyrir notkun lands undir línustæði. Horft er til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar, þar sem lagaumhverfi er sambærilegt og aðgengilegt. Jafnframt er markmiðið að ræða hvernig nýta megi þessa reynslu til að móta skýrari, réttlátari og nútímalegri umgjörð um slíkar greiðslur hér á landi. Framkvæmdastjóra falið að undirbúa kynningu á skýrslunni í samstarfi við SSV fyrir sveitarfélög á starfssvæðunum. Áhersluverkefni 2026 Framkvæmdastjóri fer yfir stöðu á áhersluverkefnum sóknaráætlunar fyrir árið 2026. Flest áhersluverkefnin voru samþykkt til tveggja ára, 2025-2026, og hafa hlotið samþykki stýrihóps stjórnarráðs um byggðamál. Stjórn felur framkvæmdastjóra að vinna drög að verkefnalýsingu vegna eftirfarandi verkefna: 2025-13 TextílLab á Blönduósi 2025-15 Fab-Lab smiðjur á Norðurlandi vestra 2026-01 Bæjarhátíðir Kveikjan – framhald á umræðum Framhald á umræðum frá 135. fundi stjórnar SSNV. Guðlaugur Skúlason, starfsmaður SSNV, kemur til fundar á Teams og fer yfir nánari upplýsingar um verkefnið Kveikjuna og stöðu þess. Stjórn samþykkir að taka ekki þátt í verkefninu á árinu 2026. Framkvæmdastjóra falið að koma bókun áfram á hlutaðeigandi aðila. Framlögð mál til kynningar a) Fundargerðir Stjórn SSH, 2. febrúar 2026. Fundargerðin. Stýrihópur Stjórnarráðs um byggðamál, 5. janúar 2026. Fundargerðin. Stjórn SSNE, 5. febrúar 2026. Fundargerðin. b) Umsagnir Grænbók um byggðamál. Mál nr. S-22/2025. Umsagnarfrestur er til og með 2. mars 2026. Drög að frumvarpi til laga um sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs. Mál nr. S-31/2026. Umsagnarfrestur er til og með 20. febrúar 2026. Framkvæmdastjóra falið að vinna drög að umsögn um Grænbók um byggðamál og drög að frumvarpi til laga um sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs. Skýrsla framkvæmdastjóra Skýrsla framkvæmdastjóra flutt munnlega. Fleira var ekki tekið fyrir. Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 14.53. Einar E. Einarsson, Álfhildur Leifsdóttir, Magnús Magnússon, Guðmundur Haukur Jakobsson, Halldór Gunnar Ólafsson og Sveinbjörg Rut Pétursdóttir.
2. febrúar 2026
Hér má nálgast fundargerð á pdf. Þriðjudaginn 24. mars 2026, kom stjórn SSNV saman til fundar á Skagaströnd. Hófst fundurinn kl. 9:00. Mætt voru: Einar E. Einarsson, Magnús Magnússon, Guðmundur Haukur Jakobsson, Álfhildur Leifsdóttir, Halldór Gunnar Ólafsson og Sveinbjörg R. Pétursdóttir framkvæmdastjóri sem ritaði fundargerð. Dagskrá: Íslandsstofa Minnisblað frá Markaðsstofu Norðurlands um gönguleiðir Byggðagleraugu SSNV Ársreikningur SSNV Ársþing SSNV Þjónustukönnun - Fyrri hluti: vinnu- og þjónustusókn Ársskýrsla SSNV Erindi frá Pétri Halldórssyni, heilbrigðisfulltrúa Framúrskarandi verkefni á Norðurlandi vestra Ályktanir ársþings SSNV Framlögð mál til kynningar a) Fundargerðir b) Umsagnir 12. Skýrsla framkvæmdastjóra Afgreiðslur Íslandsstofa Arnar Guðmundsson, viðskiptastjóri hjá Íslandsstofu, kom til fundar á Teams og kynnti verkefni á vegum Íslandsstofu þar sem unnið er að því að greina þær virðiskeðjur og fjárfestingartækifæri sem Ísland hefur raunhæfa samkeppnisstöðu í til framtíðar. Verkefnið felur í sér heildstæða kortlagningu á tækifærum til verðmætasköpunar og tengingu þeirra við mismunandi landshluta, innviði og styrkleika. Stjórn þakkar Arnari kærlega fyrir gagnlega og áhugaverða kynningu og góðar umræður um hvernig megi koma tækifærum Norðurlands vestra á framfæri í gegnum sameiginlega upplýsingagátt Íslandsstofu. Magnús Barðdal, verkefnastjóri SSNV, sat fundinn undir þessum lið. 2. Minnisblað frá Markaðsstofu Norðurlands um gönguleiðir Lagt fram erindi frá Markaðsstofu Norðurlands um gönguleiðir á Norðurlandi vestra. Stjórn þakkar Markaðsstofu Norðurlands fyrir erindið. SSNV fór í átaksverkefni með skráningu gönguleiða árin 2020-2021 þar sem 94 leiðir voru skráðar, þ.e.a.s. grunnupplýsingar þeirra: GPS-punktar, myndir og texti, og eru þær nú hýstar á vefsíðunni WIKILOC sem væri ákjósanlegt að nýta. Framkvæmdastjóra falið að koma upplýsingum áleiðis til Markaðsstofunnar. 3. Byggðagleraugu SSNV Stjórn SSNV veitir ár hvert viðurkenninguna Byggðagleraugun til ráðuneytis, stofnunar eða fyrirtæki sem þykir hafa skarað fram úr í fjölgun starfa/verkefna í landshlutanum eða með öðrum hætti stuðlað að uppbyggingu hans. Er viðurkenningunni ætlað að hvetja forsvarsmenn stofnana og fyrirtækja til að horfa með “byggðagleraugunum” á verkefni sinna eininga og nýta þau tækifæri sem gefast til flutnings starfa/verkefna á landsbyggðina í samræmi við áherslur byggðaáætlunar. Tillögur að handhafa Byggðagleraugnanna 2026 lagðar fyrir stjórn. Stjórn samþykkir tillögu að handhafa Byggðagleraugnanna og felur framkvæmdastjóra að hafa samband við viðkomandi í samræmi við umræður. Handhafi Byggðagleraugnanna verður tilkynntur formlega á ársþingi SSNV, miðvikudaginn 8. apríl, á Hótel Laugarbakka. 4. Ársreikningur SSNV Helgi Níelsson, endurskoðandi hjá KPMG kom til fundar við stjórn og fór yfir ársreikning samtakanna fyrir árið 2025. Stjórn þakkar Helga fyrir greinargóða yfirferð á ársreikningnum. Stjórn samþykkir ársreikninginn og vísar til afgreiðslu ársþings. Matthías Rúnarsson, aðalbókari samtakanna, sat fundinn undir þessum lið. 5. Ársþing SSNV Framkvæmdastjóri fór yfir drög að dagskrá fyrir ársþing SSNV. Stjórn þakkar fyrir yfirferðina og samþykkir framlagða dagskrá með áorðnum breytingum sem fram komu á fundinum. 6. Þjónustukönnun - Fyrri hluti: vinnu- og þjónustusókn Byggðastofnun hefur birt nýja skýrslu um vinnu- og þjónustusókn íbúa landsins. Skýrslan byggir á þjónustukönnun sem framkvæmd var árið 2024 meðal tæplega sjö þúsund íbúa utan höfuðborgarsvæðisins og gefur ítarlega mynd af því hvar íbúarnir sækja vinnu og ýmsa þjónustu. Lagt fram til kynningar. 7. Ársskýrsla SSNV Ársskýrsla SSNV fyrir árið 2025 lögð fram til kynningar fyrir stjórn. 8. Erindi frá Pétri Halldórssyni, heilbrigðisfulltrúa Lagt fram til kynningar erindi frá Pétri Halldórssyni, heilbrigðisfulltrúa í kraganum. 9. Framúrskarandi verkefni á Norðurlandi vestra Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra veita árlega viðurkenningar fyrir framúrskarandi verkefni sem fram hafa farið á Norðurlandi vestra árið áður. Viðurkenningar eru veittar í tveimur flokkum: a) Verkefni á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar b) Verkefni á sviði menningar Viðurkenningarnar geta fallið í hlut einstaklinga, hópa, félaga, fyrirtækja eða stofnana á Norðurlandi vestra fyrir framlag sitt í ofangreindum flokkum. Verkefnin einskorðast við að hafa fengið styrk úr uppbyggingarsjóði SSNV. Tillögur um framúrskarandi verkefni lagðar fyrir stjórn. Stjórn samþykkir framlagða tillögu að framúrskarandi verkefnum. Verkefnin verða kynnt á miðlum SSNV og fá viðurkenningu í samræmi við reglur fyrir framúrskarandi verkefni á Norðurlandi vestra. 10. Ályktanir ársþings SSNV Lagðar fram tillögur að ályktunum fyrir ársþing SSNV 2026 sem bárust frá Húnabyggð. Umræður stjórnar um önnur aðkallandi málefni til að leggja fyrir ársþing. Stjórn þakkar Húnabyggð fyrir þær tillögur sem bárust. Stjórn felur framkvæmdastjóra að vinna drög að ályktun um stöðu landshlutans. 11. Framlögð mál til kynningar a) Fundargerðir Stjórn SSH, 16. febrúar 2026. Fundargerðin. Stjórn SSH, 2. mars 2026. Fundargerðin. Stjórn SSNE, 5. mars 2026. Fundargerðin. Stjórn SSA, 20. febrúar 2026. Fundargerðin. Stjórn SASS, 6. febrúar 2026. Fundargerðin. Stjórn SSS, 11. Mars 2026. Fundargerðin. Stjórn Markaðsstofu Norðurlands, 27. janúar 2026. Fundargerðin. b) Umsagnir Frumvarp til laga um flýtingu uppbyggingar raforkuinnviða og einföldun regluverks. Mál nr. S-56/2026. Umsagnarfrestur er til og með 26. mars 2026. Tillaga til þingsályktunar um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Mál nr. 516/2026. Umsagnarfrestur er til og með 7. apríl 2026. Framkvæmdastjóra falið að vinna drög að umsögn um Frumvarp til laga um flýtingu uppbyggingar raforkuinnviða og einföldun regluverks. 12. Skýrsla framkvæmdastjóra Skýrsla framkvæmdastjóra flutt munnlega. Fleira var ekki tekið fyrir. Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 12.26. Einar E. Einarsson, Álfhildur Leifsdóttir, Magnús Magnússon, Guðmundur Haukur Jakobsson, Halldór Gunnar Ólafsson og Sveinbjörg Rut Pétursdóttir.