Setningarávarp formanns 2026

← Til baka á síðu 10. haustþings SSNV


Setningarávarp Magnúsar Magnússonar, formanns stjórnar SSNV, á 10. haustþingi SSNV á Hótel Laugarbakka 1. október 2026.


Kæru þingfulltrúar, þingmenn, starfsmenn SSNV og aðrir þinggestir 10. haustþings SSNV


Velkomin öll yfir firnindi og fjöll

forblauta jörð og malbik og mjöll


Dropinn hefur sannarlega holað steininn og helstu innviði undanfarna daga í úrkomu langt yfir viðmiðum líkt og verðbólgan undanfarin misseri fer langt með að hola innviðina vegna skertra framlaga enda langt yfir viðmiðum og markmiðum Seðlabanka Íslands. Það er vinsæl skemmtun í pólitískum skylmingum og hefðbundnum hildarleik stjórnmálanna að kenna öðrum um þegar á móti blæs. Hins vegar sýna okkur sagan og siðurinn, trúin og heimspekin að það sé heillavænlegra og skynsamlegra að líta í eigin barm þegar allar þær markátakandi mannvitsbrekkur velta fyrir sér orsökum þess að við séum nú stödd í miðri Bröttubrekku efnahagsmálanna. Sagan um bjálkann og flísina kemur upp í hugann. Það má gjarnan kannast við þá sögu í þessu samhengi vegna þess að allir eiga eitthvað – allir aðilar máls eiga eðli málsins samkvæmt einhvern hlut að margumtöluðu máli og um leið og það er sagt er ekki gert lítið úr utanaðkomandi áhrifum s.s. erlendis frá; atvinnurekendur eiga sitt, verklýðsfélögin sitt, ríkið með sín víðtæku áhrif á sitt og loks sveitarfélögin með sérlega sterk áhrif nær og gáruáhrif fjær. Leiðin út úr vandanum - þessi heiðarleið um efnahagsholtin er vörðuð leið – holtavörðuð heiðarleið. En það þarf að koma auga á holtavörðurnar og það þarf að fylgja þeim.


Því var það mjög ánægjulegt að sjá og upplifa þá samstöðu og þann samtakamátt sem var ríkjandi á Landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga í síðustu viku þar sem samþykkt var einróma ályktun þess efnis að sveitarfélögin myndu beita sér fyrir því almennar gjaldskrárhækkanir þeirra yrðu ekki hærri en 2,5% á næsta ári. Þetta er verðug varða á leið. Síðan þurfa aðrir áðurnefndir aðilar vinnumarkaðarins að rata á sína vörðu og síðast en ekki síst ríkið sjálft að ramba á sína og taka þaðan stefnuna m.t.t. heildarhagsmuna. Við vonum að öllum nefndum aðilum auðnist að verða samferða um varðaða vegferð í gegnum móðu og mistur og nái samtímis háttum og náttum á efstu bæjum í dagslok.


Við, sem skipum stjórn og stöðugildi hjá SSNV, höfum það hlutverk að vera samferða um varðaða vegferð og gæta heildarhagsmuna sveitarfélaga og samfélaga á Norðurlandi vestra. Það er mikil áskorun og ekki lítið hlutverk. Sú stjórn sem skipuð var aukaársþingi SSNV sl. sumar hefur verið starfssöm og samtaka. Við byrjuðum á því að ráða framkvæmdastjórann, Sveinbjörgu Rut Pétursdóttur, til frambúðar en hún hafði verið ráðin tímabundin út síðasta kjörtímabil þegar Katrín M Guðjónsdóttir þáverandi framkvæmdastjóri hvarf til annarra starfa þá er kjörtímabilið var ríflega hálfnað. Við tókum að öðru leyti við keflinu af fyrrverandi stjórn sem hafði ávarpað bæði við þingmenn og ráðherra kalda stöðu svæðisins efnahagslega og innviðalega séð og átt raunar sérstakan fund með innviðaráðherra þar um sl. vetur. Í ljósi þessa og einnig í ljósi umræðna í sveitarfélögunum í kosningabaráttunni sl. vor þá einhentum við okkur í það verkefni eftir ígrundað samtal innan stjórnar og sömuleiðis við starfsmenn að auglýsa eftir verkefnisstjóra fjárfestinga og atvinnuráðgjafar. Því ferli er lokið og að öllu forfallalausu mun nýr verkefnastjóri nefndra greina taka til starfa um miðjan nýbyrjaðan októbermánuð. Höfuðverkefni þessa nýja starfsmanns verður að kortleggja innviði og auðlindir á starfssvæði SSNV þannig að sú yfirsýn verði aðgengileg hilluvara og nauðsynleg vitneskja annars vegar fyrir samtökin og sveitarfélögin sjálf og hins vegar fyrir fjárfesta og frumkvöðla sem vilja hasla sér völl úti á landsbyggðinni eða á Íslandi yfir höfuð. Við ætlum að vera með – við ætlum að vera tilbúin þegar kallið kemur.


Við í stjórn SSNV höfum einnig samþykkt áframhaldandi samstarf til næstu þriggja ára við nýsköpunarverkefnið Eim, sem hefur að leiðarljósi bætta nýtingu orkuauðlinda á Norðurlandi. Auk þess höfum við samþykkt að fara í samstarf við Orkusamfélag Steingerðar um evrópuverkefnið Deploy-ped í formi stöðugildis til næstu fjögurra ára þar sem rannsakaðir verða möguleikar á endurnýjanlegri orku á Norðurlandi vestra m.a. með vinnslu metangass úr mykju til notkunar á dráttarvélar o.fl. en hlutur SSNV í stöðugildinu væri eyrnamerktur atvinnuráðgjöf með nánari skilgreiningum auk tilfallandi verkefna.


Samgöngu- og innviðamál eru okkur hugleikin í allri hagsmunagæslu. Við skipuðum fyrst í sameiginlega samgöngu- og innviðanefnd árið 2018 og sú nefnd skilaði fullgildri samgöngu- og innviðaáætlun tæpu ári síðar og hefur sú áætlun verið tvíendurskoðuð. Þegar við stofnun þessarar nefndar var farið í kortlagningu á stöðu innviða á svæðinu sem og forgangsröðun verkefna sérstaklega á sviði vegamála annars vegar innan hvers sveitarfélags og hins vegar á svæðinu öllu. Þetta hefur kallað öll sveitarfélög til ábyrgðar og með þessu lagi hefur okkur miðað þokkalega áfram veginn síðustu ár; Síðasta hluta Þverárfjallsvegar með tengingu við Skagaströnd lauk fyrir tæpum þremur árum, Fljótagöng eru í farvatninu auk þess sem uppbyggingu og slitlagningu Vatnsnesvegar á ljúka á næstu átta árum. Vatnsnesvegur var og í allri þessari baráttu tekinn út úr tengivegapotti sem aftur skapaði súrefni fyrir vinnu við styttri verkefni úr þeim potti s.s. uppbyggingu kafla Vatnsdalsvegar að vestan og Skagavegar norðan Skagastrandar. Af sömu ástæðu ætti slík uppbygging á styttri tengivegaköflum að geta haldið áfram á Norðurlandi vestra þegar Vatnsnesvegur er kominn fyrir vind. En það er engin leið að hætta og halla sér aftur í stólnum. Við höldum áfram veginn að hola steininn og þrýsta á um vegabætur og raunar allt sem tengist í samgöngu- og innviðamálum og þess vegna liggur fyrir þessu þingi tillaga um að endurskipað verði í Samgöngu- og innviðanefnd SSNV.


Á fleiri stöðum látum við hagsmunadropum rigna svo hola megi steininn. Við í stjórn SSNV höfum ávarpað í orði kveðnu við einstaka þingmenn og ráðherra skert framlag til sóknaráætlana skv. fjárlagafrumvarpinu og raunar sett það inn í nýlega skriflega umsögn okkar um frumvarpið. Um er að ræða 400 m.kr. skerðingu undir liðnum Byggðamál v/tímabundins framlags til sóknaráætlana landshlutanna. Einnig lækka framlög til atvinnuráðgjafa á landsbyggðinni um 35 m.kr. Allt er þetta verulegt áhyggjuefni.


Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu er einnig niðurskurður á tímabundnum framlögum tengd lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna þar sem sérstök viðbótarframlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga lækka um 1.100 m.kr. Sveitarfélög bera þó áfram meginhluta þjónustunnar og kostnað við innleiðingu laganna, m.a. í gegnum störf tengiliða og málstjóra. Við í stjórn SSNV gerum alvarlega athugasemd við að framlögin falli niður án þess að fyrir liggi kostnaðarmat sveitarfélaganna við framkvæmd laganna. Á sama tíma er í tillögu til þingsályktunar um stefnu og framkvæmdaáætlun um farsæld barna engin skuldbinding um fjármögnun svæðisbundinna farsældarráða eftir 2027. Þar leggjum við áherslu á að framlögin verði framlengd þangað til kostnaðarmat liggur fyrir og að tryggt verði fjármagn til farsældarráða í öllum landshlutum.


Já eins og listaskáldið sagði forðum: ,,Það er svo margt ef að er gáð / sem þörf er um að ræða“ en nú er mál að linni. Áður en ég stíg úr stólnum vil ég gera tillögu að starfsmönnum þingsins. Ólafur Þór Ólafsson verði þingforseti og Unnur Valborg Hilmarsdóttir til vara. Ritarar verði Berglind Björnsdóttir og Davíð Jóhannsson og til vara Matthías Rúnarsson og Sara Björk Þorsteinsdóttir.


Það er áhugavert þing og fjölbreytt dagskrá framundan. Vona að við tökum flest ef ekki öll fullan þátt bæði í þingstörfum og nefndarstörfum; þar skiptir mestu að skiptast á skoðunum, ræða málin og njóta samfundanna. Að svo mæltu bið ég Ólaf Þór þingforseta að taka við keflinu og stjórn þingsins. Haustþing SSNV er sett.


Magnús Magnússon

Formaður stjórnar SSNV