Samgönguminjasafnið
Fiskidagurinn
Glaumbær
Vesturfarasetrið
Þjóðlagasetur
Hof
Síldarminjasafnið
Orbis et Globus
Laufás
Selasetur Íslands
Hvalasafnið
Vatnsdæla

Leitarvél

Eyþing (Samband sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum) og SSNV (Samtök sveitarfélaga Norðurland vestra) halda utan um viðamikinn gagnagrunn um menningartengda þjónustu á Norðurlandi. Skráning í grunninn er aðilum að kostnaðarlausu og verður skráning og viðhald upplýsinga í höndum Eyþings og SSNV. Menningarbrunnur - Gagnagrunnur um menningartengda þjónustu á Norðurlandi hlaut styrk úr Sóknaráætlun Norðurlands eystra sem áhersluverkefni árið 2015.

Í grunninum er að finna upplýsingar um: 

Hátíðir, húsnæði, hönnunarhús/gallerí, menningarstofnanir/félög, svæðisbundna fjölmiðla, söfn/setur, tónlist, útilistaverk og vinnustofur listamanna.

Stefnt er að því að gagnagrunnurinn verði aðgengilegur á heimasíðu Eyþings, SSNV, Markaðsstofu Norðurlands, Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar, Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga og heimasíðum allra sveitarfélaga á Norðurlandi.

Frekari upplýsingar um gagnagrunninn veita Vigdís Rún Jónsdóttir verkefnastjóri menningarmála há Eyþingi, netfang vigdis@eything.is og Ingibergur Guðmundsson verkefnastjóri hjá SSNV, netfang ingibergur@ssnv.is