24. mars 2026
Viðskiptamódel samfélagsdrifinna fyrirtækja í dreifbýli
Fimmtudaginn 26. mars 2026 kl. 9:30–11:00 fer fram alþjóðleg vefstofa á Zoom um viðskiptamódel samfélagsdrifinna fyrirtækja í dreifbýli.
Vefstofan fer fram á ensku og gæti höfðað til frumkvöðla, stuðningskerfis samfélagsfrumkvöðla, stefnumótenda og annarra sem hafa áhuga á samfélagslegri nýsköpun og þróun í dreifbýli.
Vefstofan er skipulögð af MERSE verkefninu í samstarfi við Mid Sweden University og Vestfjarðastofu. MERSE er alþjóðlegt samstarfsverkefni styrkt af Interreg Northern Periphery and Arctic Programme.
Áhugasöm eru hvött til að kynna sér nánari upplýsingar á heimasíðu Vestfjarðastofu, taka þátt, fá innblástur, læra um viðstkiptamódel í dreifbýli og tengjast öðrum sem starfa á þessu sviði.
Hér er skráningarsíða viðburðarins.
