12. júní 2026

Viðburðir fyrir barnamenningarhátíðina Skúnaskrall - Öll saman

Eins og vonandi öllum er kunnugt fékk barnamenningarhátíðin Skúnaskrall - Öll saman sex milljónir í styrk frá Barnamenningarsjóði á dögunum og að auki er hún eitt áhersluverkefna SSNV fyrir þetta ár. 


Nú er komið að því að bjóða viðburðahöldurum að standa fyrir viðburði/viðburðum á hátíðinni og sækja um styrk ef þarf. 


Hér má nálgast slóð að umsóknarformi sem við viljum hvetja sem flest ykkar til að kynna ykkur og miðla einnig til annars listafólks: Skúnaskrall – Öll saman Barnamenningarhátíð á Norðurlandi vestra 2026 – Fill in form 


Umsóknarfrestur er til 10. ágúst og verður öllum umsóknum svarað. 



Þá eru hér einnig upplýsingar um matsblað sem úthlutunarnefndin mun nota við val á viðburðum og gott er að kynna sér vandlega: Matsblað Skúnaskralls.


Verklags- og úthlutunarreglur sem tilheyra hátíðinni eru hér að neðan. 


Gerum hátíðina okkar sem veglegasta og leggjum metnað í þá viðburði sem bjóðast munu börnum og ungmennum landshlutans.