27. ágúst 2026
Vantar fjármagn inn í fyrirtækið þitt?
Opið er fyrir umsóknir í Svanna-lánatryggingasjóð kvenna
Nú er opið fyrir umsóknir í Svanna-lánatryggingasjóð kvenna, en sjóðurinn veitir lán með lánatryggingum til fyrirtækja í eigu kvenna. Sjóðurinn er í eigu tveggja ráðuneyta og Reykjavíkurborgar og er liður í viðleitni stjórnvalda til að efla atvinnulíf og hvetja til nýsköpunar á Íslandi.
Eingöngu fyrirtæki í eigu konu/kvenna geta fengið lán og er hámarkslán 15 milljónir.
Upplýsingar og umsóknareyðublað má finna á heimasíðu sjóðsins, www.svanni.is
Umsóknarfrestur er til 15. október 2026