27. febrúar 2026
Vá ! Ekkert smá !
Málþing um stöðu og framtíð smáframleiðenda 18. apríl 2026 kl. 10:00 til 15:00 í Menningarhúsinu Miðgarði í Skagafirði
Hin mikla gróska, sem hefur verið í röðum smáframleiðenda undanfarin ár, ekki síst á landsbyggðinni, hefur þótt eftirtektarverð. Fjölmargir frumkvöðlar hafa byggt upp áhugaverða framleiðslu, sem að stærstum hluta tengist matvælum, en á heildina litið kennir ýmissa grasa. Eins og stundum vill verða hefur svona kraftmikil vegferð þurft að reka sig á ýmsa veggi í sínu rekstrarumhverfi og áskoranirnar af ýmsu tagi. En tækifærin eru líka mörg og fjölbreytileg.

Með málþinginu langar okkur með góðum gestum að draga upp mynd af stöðunni, en ekki síður að horfa inn í framtíðina og hvaða forsendur séu nauðsynlegar fyrir áframhaldandi grósku.
Dagskrá:
- Setning
Sveinbjörg Rut Pétursdóttir, framkvæmdastjóri SSNV - Kveðja frá atvinnuvegaráðherra
Kristín Sigfúsdóttir, stjórnarráðsfulltrúi- Atvinnuvegaráðuneytið - Smáframleiðendur – staðan í dag
Oddný Anna Björnsdóttir, fráfarandi framkvæmdastjóri SSFM - Af vettvangi smáframleiðanda í kjöti
Skúli Þórðarson, eigandi Sláturhússins Refsstað á Vopnafirði - Af vettvangi smáframleiðanda í lífrænu grænmeti
Elínborg Erla Ásgeirsdóttir, grænmetisbóndi og formaður Lífrænt Ísland - Gæði og gögn - þróun gæðastjórnunarlausnar fyrir smáframleiðendur
Sunna Guðlaugsdóttir og Margeir Arndal, frumkvöðlar - IORDEN - Höfum hlutina í lagi
Egill Þorri Steingrímsson Sviðsstjóri samhæfingar – Matvælastofnun
HÁDEGISHLÉ - Og auðvitað fræðsla
Halldór B. Gunnlaugsson, framkvæmdastjóri – Farskólinn á Norðurlandi vestra - Veitingageirinn og smáframleiðendur
Rafn Svansson veitingamaður - NORTH veitingastaður á Akureyri - Smásöluverslun og smáframleiðendur
Gréta María Grétarsdóttir, fyrrum farmkvæmdastjóri Krónunnar og Prís - PALLBORÐ með framsögufólki undir stjórn Hlédísar Sveinsdóttur málþingsstjóra
– spurningar úr sal
- Samantekt: Sveinbjörg og Hlédís
- Málþingslok
Málþingið er öllum opið en nauðsynlegt er að skrá sig
HÉR fyrir föstudaginn 17. apríl n.k.
Athugið að hægt er að bóka hótelgistingu í hjá Hótel Varmahlíð fyrir nóttin 17. til 18. apríl
- tveggja manna herbergi með morgunverði á 22,000 kr nóttin.
- einstaklingsherbergi með morgunverði á 15.500 kr nóttin.
Bókanir í tölvupósti til info@hotelvarmahlid.is