20. febrúar 2026

Ungmenni kalla eftir skýrari hlutverkum og aðkomu í ákvarðanatöku

Ungmenni úr ungmennaráðum víðs vegar af landinu tóku þátt í ráðstefnu ungmennaráða sveitarfélaga í desember síðastliðnum á vegum Sambandsins.

Þar kom augljóslega fram hjá ungmennunum að þau vilja að sveitarstjórnir veiti þeim skýrara hlutverk og raunveruleg áhrif í ákvarðanatöku. Þau lögðu áherslu á mikilvægi aðkomu að stefnumótun í málum sem varða daglegt líf þeirra, svo sem samgöngur, skólamál, frístundir, öryggi í nærumhverfi og aðgengi að þjónustu.

Ungmennin bentu á að víða hefðu ungmennaráð þegar haft jákvæð áhrif, meðal annars með ábendingum um bætta strætóþjónustu, lýsingu í hverfum, umferðaröryggi og endurbætur á leik- og íþróttasvæðum.


Samkvæmt niðurstöðum ráðstefnunnar er vilji ungs fólks sterkur til að vera virkir þátttakendur í stjórnsýslu sveitarfélaga og fá skýrt og viðurkennt hlutverk í ákvarðanatöku.


Rýma þessar niðurstöður við þær sem heyrst hafa á ungmennaþingum SSNV.


Þessu málefni tengt hefur starfsfólk SSNV fundað með fulltrúum sveitarfélaga í landshlutanum sem sinna ungmennamálum og ungmennaráðum. Tilgangur fundanna er að efla samstarf og styðja ungmennaráð í þeirra starfi svo rödd ungs fólks á svæðinu fái meira vægi í stefnumótun innan sveitarfélaganna.


Nánar í frétt á vef Sambandsins.