3. mars 2026
Undirbúningsstyrkurinn Fræ, opið er fyrir umsóknir
Fræ er undirbúningsstyrkur Tækniþróunarsjóðs (Rannís) fyrir einstaklinga sem eru með verkefni á hugmynda- eða frumstigi og vilja taka fyrstu skref í þróun virðisaukandi vöru eða þjónustu. Fyrirtækjum yngri en fimm ára býðst einnig að sækja um Fræ -styrkinn.

Styrkurinn getur numið allt að 2.000.000 kr. og er ætlað að styðja við mótun hugmyndar, frumprófanir og undirbúning næstu skrefa, t.d. með áherslu á vaxtarmöguleika og markaðstækifæri.
Opið er allt árið fyrir umsóknir og verkefni skulu að jafnaði klárast innan 12 mánaða frá úthlutun.
Nánari upplýsingar og umsóknir má finna á heimasíðu Tækniþróunarsjóðs (Rannís).