3. september 2026
Styrkir til staðbundinna fjölmiðla utan höfuðborgarsvæðisins
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti auglýsir eftir umsóknum um styrki til staðbundinna fjölmiðla utan höfuðborgarsvæðisins og er umsóknarfrestur til miðnættis þriðjudaginn 1. október 2026.
Markmið með styrkveitingum til einkarekinna staðbundinna fjölmiðla utan höfuðborgarsvæðisins er að efla starfsemi þeirra enda gegni þeir mikilvægu hlutverki við að tryggja aðgengi almennings að upplýsingum um menningar- og samfélagsmál og styðji með þeim hætti við lýðræðisþátttöku og menningarstarf skv. 3 gr. reglana nr. 833/2026.
Til úthlutunar árið 2026 eru 15 m.kr.: 12,5 m.kr. frá menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti og 2,5 m.kr. frá innviðaráðuneyti vegna aðgerðar C.07 í byggðaáætlun, Efling fjölmiðlunar í héraði. Umsækjendum er bent á að kynna sér ákvæði reglna nr. 833/2026 um styrkveitingar til staðbundinna fjölmiðla.
Til að sækja um þarf að fylla út umsóknareyðublað sem nálgast má hér og í hlekk neðst í fréttinni. Umsóknina þarf að prenta út til undirritunar, skanna og senda, ásamt umbeðnum fylgiskjölum á netfang menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis, mnh@mnh.is, fyrir miðnætti 1. október 2026. Ef spurningar vakna um hvernig eigi að fylla umsóknina út er hægt að senda fyrirspurn á framangreint netfang. Nánar hér á frétt stjórnarráðsins.
Til glöggvunar má nefna að höfuðborgarsvæðið nær yfir sveitarfélögin Reykjavíkurborg, Kópavogsbæ, Hafnarfjarðarkaupstað, Garðabæ, Seltjarnarnesbæ og Mosfellsbæ.
Umsóknareyðublað fyrir staðbundna fjölmiðla.