29. júní 2026
Styrkir til aðlögunar að lífrænum framleiðsluháttum
Atvinnuvegaráðuneytið auglýsir til umsóknar styrki til lífrænnar aðlögunar í landbúnaði á árinu 2026.
Framleiðendur sem hafa byrjað lífræna aðlögun í samræmi við gildandi reglugerð um lífræna framleiðslu landbúnaðarafurða og merkingar geta sótt um. Lífræna aðlögunin skal jafnframt vera undir eftirliti faggildu löggildingarstofunnar Túns.
Á Afurð má einnig finna upplýsingar um nauðsynleg fylgiskjöl með umsókn.
Nánari upplýsingar um styrkina, skilyrði og umsóknarferlið má finna á vef Stjórnarráðsins

Umsóknarfrestur á Afurð er til miðnættis
4. ágúst nk.