21. ágúst 2026
Starfsmaður í þvottahús - HSN Blönduósi
Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Blönduósi óskar eftir starfsmanni í þvottahús. Um er að ræða 50% ótímabundið starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt samkomulagi.
Hér má sjá upplýsingar um HSN á Blönduósi: Fjölbreytt starfsemi og hlýtt starfsumhverfi
Helstu verkefni og ábyrgð
- Móttaka, flokkun og meðhöndlun á óhreinum textíl
- Þvottur, þurrkun, straujun og frágangur á hreinum textíl
- Einfaldar viðgerðir á textíl
- Flutningur á textíl og öðrum varningi milli nærliggjandi starfsstöðva HSN
- Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
- Reynsla af vinnu í þvottahúsi er kostur
- Ökuréttindi eru skilyrði
- Frábær samskiptahæfni og jákvæðni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Sveigjanleiki, nákvæm og ábyrg vinnubrögð
- Íslensku- eða enskukunnátta
- Hreint sakavottorð og gott orðspor
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Stéttarfélagið Samstaða hafa gert.
Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi á íslensku þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Ekki er unnt að ráða fólk yngra en 18 ára.
Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfstorg.is með því að smella hér fyrir neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.
Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.
HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntun á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.
Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing.
Starfshlutfall er 50%
Umsóknarfrestur er til og með 21.08.2026
Sótt er um starfið hér.
Nánari upplýsingar veitir
Helga Margrét Jóhannesdóttir
yfirhjúkrunarfræðingur svæðis
Tölvupóstur: helga.margret.johannesdottir@hsn.is
Sími: 432 4100