20. október 2026

Starfsmaður í bifreiðaskoðun Sauðárkróki

Skoðunarmaður

Frumherji óskar eftir hæfileikaríkum og metnaðarfullum bifvélavirkja, vélvirkja eða bifreiðasmið til starfa á skoðunarstöð á Sauðárkróki. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf sem felur í sér bifreiðaskoðanir, endurmenntun og starfsréttindi sem skoðunarmaður.


Við bjóðum upp á

  • Öruggt starfsumhverfi
  • Þægileg innivinna við góðar aðstæður
  • Starfið er lifandi og spennandi þar sem unnið er við fjölbreyttar bifreiðaskoðanir fyrir frábæra viðskiptavini
  • Góða starfsmannaaðstöðu
  • Öflugt starfsmannafélag sem skipuleggur fjölbreytta viðburði og félagsstarf
  • Fjölskylduvænan vinnustað


Við leitum að jákvæðum og drífandi einstaklingi með brennandi áhuga á tækni og nýjungum, sem langar að starfa með sterku liði sérfræðinga þar sem miklir möguleikar eru á endurmenntun og þjálfun.


Vinnutími

Mánudaga - föstudaga 08:00 - 16:00



Sótt er um hér.

Við hvetjum alla sem uppfylla hæfnikröfur að sækja um óháð kyni.


Frekari upplýsingar um starfið veitir Sigurður í tölvupósti siggi@frumherji.is

Öllum umsóknum verður svarað og þær meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.


Helstu verkefni og ábyrgð

  • Annast skoðun ökutækja
  • Samskipti við viðskiptavini
  • Skráningar í tölvu
  • Eftirlit með tækjum og húsnæði
  • Sækja endurmenntun og faglega þjálfun
  • Þátttaka í öðrum tilfallandi verkefnum


Menntunar- og hæfniskröfur

  • Sveinspróf í bifvélavirkjun, vélvirkjun eða bifreiðasmíði
  • Frumkvæði, sjálfstæði og fagleg vinnubrögð
  • Snyrtimennska, stundvísi og áreiðanleiki
  • Gilt bílpróf


Fríðindi í starfi

Fjölbreytt fríðindi samkvæmt mannauðsstefnu Frumherja

  • Afsláttur af vöru og þjónustu fyrirtækisins
  • Árlegur íþrótta- og heilsustyrkur
  • Styrkir til meiraprófs
  • Gott starfsumhverfi
  • Góður starfsandi og öflugt starfsmannafélag
  • Þjálfun og réttindi frá Samgöngustofu til skoðunar á bifreiðum