11. september 2026

Skrifstofumaður

Umsóknarfrestur er til og með 14.09.2026

Laus er til umsóknar staða skrifstofumanns við embætti sýslumannsins á Norðurlandi vestra á sýsluskrifstofunni á Sauðárkróki.

Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf 1. október n.k. eða sem næst því, eftir nánara samkomulagi. Um er að ræða ótímabundna ráðningu með 6 mánaða reynslutíma.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Almenn skrifstofustörf og móttaka gagna
  • Gjaldkerastörf
  • Upplýsingagjöf í síma og tölvupósti við viðskiptavini og hagsmunaaðila
  • Afgreiðsla og afhending gagna, svo sem þinglýstra skjala, vegabréfa, ökuskírteina, stæðiskorta, vottorða o.fl.
  • Umsjón með frágangi skjalasafns starfsstöðvarinnar, eftirfylgni með skjalaskráningu og skilum til Þjóðskjalasafns
  • Önnur tilfallandi verkefni sem sinnt er hjá embættinu.

Hæfniskröfur

  • Stúdentspróf (3. þrep íslenska hæfnirammans) eða reynsla í sambærilegu starfi
  • Önnur menntun sem nýtist í starfi er kostur
  • Mjög gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti
  • Reynsla af þjónustustörfum eða skjalavörslu er kostur, svo og önnur reynsla sem nýtist í starfi
  • Gott vald á upplýsingatækni og hæfni til að tileinka sér nýjungar á því sviði

Nauðsynlegt er að umsækjendur búi yfir ríkri samstarfs- og skipulagshæfni, nákvæmni og ögun í vinnubrögðum og getu til að vinna undir álagi. Einnig er krafa um að umsækjendur sýni frumkvæði, sjálfstæði, jákvæðni og metnað í starfi og hafi hæfni til að leiðbeina og miðla upplýsingum. Þess er vænst að umsækjendur hafi reynslu í fyrri störfum þar sem reynt hefur á þessa eiginleika.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Umsókn um starfið skal skila rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins og skulu fylgja:

  • Starfsferilskrá.
  • Upplýsingar um meðmælendur.
  • Stutt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjenda í starfið.
  • Afrit af prófskírteinum ef við á.

Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir um að vanda umsóknir sínar. Við mat á umsóknum verður horft til þess að umsækjandi falli sem best að þörfum starfsstöðvar og embættisins í heild.

Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni.

Einstaklingar óháð kyni eru hvött til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Athygli er vakin á því að umsóknir munu gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út með vísan til 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 464/1996 um auglýsingar á lausum störfum, með síðari breytingum, sbr. 2. mgr. 7. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Þann 1. janúar 2027 tekur nýtt sameinað sýslumannsembætti til starfa. Starfsfólk núverandi embætta verður starfsfólk hjá hinu nýja embætti.


Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 14.09.2026


Nánari upplýsingar veitir

Auður Steingrímsdóttir

skrifstofustjóri

Tölvupóstur: audur.steingrimsdottir@syslumenn.is

Sími: 4582554


Sótt er um starfið hér.