8. september 2026

Sjúkraliðar og sjúkraliðanemar - HSN Blönduós

Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) á Blönduósi óskar eftir metnaðarfullum, jákvæðum og þjónustulunduðum sjúkraliðum og sjúkraliðanemum á hjúkrunarsvið. Um er að ræða fjölbreytt og gefandi starf í lifandi starfsumhverfi þar sem áhersla er lögð á fagmennsku, öryggi, virðingu og góða þjónustu. Starfið býður upp á tækifæri til að öðlast dýrmæta reynslu, efla fagþekkingu og taka þátt í öflugu þverfaglegu samstarfi.

Hjá HSN Blönduósi er lögð áhersla á jákvætt starfsumhverfi þar sem samvinna, traust, vellíðan starfsfólks og góð liðsheild eru í fyrirrúmi.


Hér má sjá upplýsingar um HSN á Blönduósi: Fjölbreytt starfsemi og hlýtt starfsumhverfi

Hér má sjá upplýsingar um HSN í hnotskurn fyrir allar starfsstöðvar


Helstu verkefni og ábyrgð

  • Almenn aðhlynningarstörf og stuðningur við íbúa í samstarfi við fagaðila
  • Eftirlit með líðan íbúa og miðlun mikilvægra upplýsinga til hjúkrunarteymis
  • Skráning og meðferð upplýsinga samkvæmt verklagsreglum og gæðaviðmiðum
  • Þátttaka í teymisvinnu
  • Stuðla að vellíðan, öryggi og virðingu skjólstæðinga
  • Þátttaka í faglegu þróunarstarfi og umbótaverkefnum eftir því sem við á
  • Frágangur, þrif og önnur tilfallandi verkefni sem tengjast daglegum rekstri deildarinnar
  • Önnur tilfallandi verkefni


Hæfniskröfur

  • Íslenskt sjúkraliðaleyfi/ staðfesting á námi fyrir nema
  • Áhugi á að starfa með fólki
  • Reynsla af umönnun er kostur
  • Rík þjónustulund, jákvætt viðmót og mjög góð samskiptahæfni
  • Áreiðanleiki og sveigjanleiki
  • Góð íslenskukunnátta
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Hreint sakavottorð og gott orðspor


Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.

Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá, kynningarbréf á íslensku ásamt afriti af starfsleyfi sjúkraliða ef við á. Fyrir nema skal fylgja með staðfesting á námi. Ekki er unnt að ráða fólk yngra en 18 ára.


Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfstorg.is með því að smella hér fyrir neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.


Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.

HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntun á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.


Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing.

Starfshlutfall er 40-100%

Umsóknarfrestur er til og með 14.09.2026

Sótt er um hér.



Nánari upplýsingar veitir

Viktoría Björk Erlendsdóttir

Tölvupóstur: viktoria.bjork.erlendsdottir@hsn.is

Sími: 432 4984

Helga Margrét Jóhannesdóttir

Tölvupóstur: helga.margret.johannesdottir@hsn.is

Sími: 432 4100