21. ágúst 2026
Sjúkraþjálfari - HSN Blönduós/ Skagaströnd
Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) á Blönduósi óskar eftir að ráða sjúkraþjálfara í 100% starfshlutfall á Blönduós og Skagaströnd. Ráðningartími er samkvæmt samkomulagi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Um er að ræða fjölbreytt og áhugavert starf þar sem 60% eru á sjúkra- og hjúkrunardeild, 20% í heilsugæslu og 20% á hjúkrunarheimili Blönduós/Skagaströnd. Starfað er í þverfaglegu teymi þar sem lögð er áhersla á fagmennsku, samstarf og góða þjónustu við skjólstæðinga.
Hér má sjá upplýsingar um HSN á Blönduósi: Fjölbreytt starfsemi og hlýtt starfsumhverfi
Hér má sjá upplýsingar um HSN í hnotskurn fyrir allar starfsstöðvar
Möguleiki á aðstoð við húsnæði fyrir þau sem ekki eru þegar búsett á Blönduósi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á þeirri sjúkraþjálfun sem veitt er og mat á árangri meðferðar
- Skráning og skýrslugerð
- Fræðsla til sjúklinga og aðstandenda
- Heimavitjanir og ráðgjöf
- Mat á þörf fyrir hjálpartæki og hjálpartækjabeiðnir
- Þátttaka í þverfaglegu samstarfi/teymi
- Þátttaka í fagþróun
- Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
- Íslenskt starfsleyfi sem sjúkraþjálfari
- Bílpróf skilyrði
- Góð íslenskukunnátta æskileg
- Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
- Góð fagleg þekking
- Frábær samskiptahæfni, jákvæðni og sveigjanleiki
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Hreint sakavottorð og gott orðspor
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag sjúkraþjálfara hafa gert.
Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi á íslensku þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Með umsókn skal einnig fylgja afrit af prófskírteinum og íslenskt starfsleyfi.
Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfstorg.is. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.
Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.
HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntun á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.
Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 21.08.2026
Nánari upplýsingar veitir
Helga Margrét Jóhannesdóttir
yfirhjúkrunarfræðingur svæðis
Tölvupóstur: helga.margret.johannesdottir@hsn.is
Sími: 432 4100
Viktoría Björk Erlendsdóttir
deildarstjóri
Tölvupóstur: viktoria.bjork.erlendsdottir@hsn.is
Sími: 432 4984