20. október 2026

Sérfræðingur í bókhaldi hjá ECIT á Blönduósi.

ECIT á Íslandi er alþjóðlegt fyrirtæki á sviði bókhalds- og launavinnslu með um 110 sérfræðinga sem hafa aðsetur á 13 stöðum um land allt.


Við leitum nú að öflugum einstaklingum með reynslu og þekkingu í bókhaldi og launavinnslu til starfa á skrifstofu okkar á Blönduósi. Við leitum að sérfræðingum í fullt starf og kostur ef viðkomandi getur hafið störf sem fyrst.


Sótt er um hér.


Starfsfólk okkar þarf almennt að geta tekið frumkvæði og unnið sjálfstætt, vera lausnamiðað, þjónustulundað og eiga auðvelt með samskipti við samstarfsfólk og viðskiptavini félagsins.

Í samræmi við markmið okkar í jafnréttismálum hvetjum við öll til að sækja um óháð kyni.


Helstu verkefni og ábyrgð

Færsla og afstemming bókhalds fyrir viðskiptavini ECIT á Íslandi.

Skil í uppgjör og skil á virðisaukaskatti

Upplýsingagjöf og almenn ráðgjöf til viðskiptavina.

Önnur tilfallandi verkefni


Menntunar- og hæfniskröfur

Viðskiptamenntun æskileg og/eða nám til viðurkennds bókara.

Krafa um góða þekkingu og reynslu af bókhaldsstörfum

Reynsla af einfaldri launavinnslu

Þekking og reynsla af bókhaldskerfum

Enskukunnátta æskileg

Talnagleggni og tölvufærni

Sjálfstæð og nákvæm vinnubrögð

Rík þjónustulund og jákvæðni


Nánari upplýsingar veitir Elísabet Ósk Guðjónsdóttir Mannauðsstjóri (elisabet.gudjons@ecit.is)