3. september 2026
Rafrænar kynningar um styrkjamöguleika NORA
Í tengslum við komandi umsóknarlotu stendur NORA, Norræna Atlantssamstarfið, fyrir tveimur rafrænum kynningum um verkefnastyrki þriðjudaginn 8. september 2026. Önnur kynningin fer fram á dönsku og hin á ensku. Kynningarnar eru ætlaðar áhugasömum og mögulegum umsækjendum um styrki.
NORA getur styrkt verkefni um allt að 500.000 danskar krónur á ári (þrisvar sinnum). Ef þú hefur góða verkefnahugmynd og mögulegan samstarfsaðila í öðru NORA landi þá gætu kynningarnar verið vettvangur til að heyra um fjármögnunarmöguleika fyrir samstarfsverkefni í Norður-Atlantshafi.
Gott tækifæri gefst til að spyrja spurninga um styrkina og umsóknarferlið.
Ekki er þörf á skráningu fyrirfram á kynningarnar, bara mæta. Öll velkomin.
Hér eru slóðir á kynningarfundina, ásamt tímasetningu:
Kynning á dönsku: þriðjudaginn 8. september kl. 10:00
Kynning á ensku: þriðjudaginn 8. september kl. 11:00
Næsti umsóknarfrestur í NORA er mánudaginn 5. október 2026. Á heimasíðu NORA, www.nora.fo eru ítarlegar upplýsingar um umsóknarferlið og kynningarfundina.
Nánari upplýsingar veitir tengiliður NORA, Hanna Dóra Björnsdóttir hjá Byggðastofnun, netfang: hannadora@byggdastofnun.is