3. september 2026

Opnað fyrir umsóknir um styrki til að styðja við uppbyggingu vinnustaðaklasa á landsbyggðinni

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki til að styðja við uppbyggingu vinnustaðaklasa á landsbyggðinni.
Veittir verða styrkir fyrir allt að 50 milljónir kr. Byggðastofnun heldur utan um umsýslu vegna styrkjanna og er umsóknarfrestur er til kl. 12 á hádegi mánudaginn 28. september nk.

Innviðaráðherra veitir styrkina sem veittir eru á grundvelli byggðaáætlunar fyrir árin 2022-2036, nánar tiltekið aðgerð B.7 um óstaðbundin störf. Markmiðið er að efla búsetufrelsi með fjölgun atvinnutækifæra og auknum fjölbreytileika starfa á landsbyggðinni. Aðgerðin felur í sér að styrkja uppbyggingu vinnustaðaklasa og að fjölga óstaðbundnum störfum á landsbyggðinni.


Þetta er í annað skipti sem auglýst er eftir umsóknum um styrki til vinnustaðaklasa, en í mars sl. veitti innviðaráðherra styrki til 26 klasa, samtals að upphæð tæplega 50 milljónir kr.


Nánar um styrkina

Styrkhæfir eru aðilar sem reka vinnustaðaklasa utan höfuðborgarsvæðisins. Í forgangi verða minni staðir þar sem atvinnulíf er einhæft, svæði sem hafa orðið fyrir verulegum áföllum í atvinnulíf eða svæði á fámennum vinnusóknarsvæðum.


Hægt er að veita styrki til að mæta launakostnaði við að koma af stað nýrri starfsemi, fjölga plássum gegn langtímaskuldbindingu um nýtingu plássa eða greiða sameiginlegan rekstrarkostnað við starfsemina.



Vinnustaðaklasi er skilgreint sem skipulagt og samnýtt vinnurými þar sem fjölbreytt vinnuaðstaða stendur til boða fyrir fleiri en einn vinnustað eða starfsstöðvar vinnustaða.

Fjallað er um valnefnd og mat umsókna í reglum um úthlutun innviðaráðherra á framlögum sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2022-2036. Fjallað er nánar um verkefnið óstaðbundin störf í aðgerðaáætlun byggðaáætlunar (aðgerð B.7).