12. október 2026
Markaðssókn í ferðaþjónustu - Opinn kynningarfundur
Mánudaginn 12. október kl.: 18:00
í Krúttinu á Blönduósi

Hver erum við og hvernig viljum við að fólkið, sem við viljum fá í heimsókn, líti á okkur? Þessi spurning hefur brunnið lengi á ferðaþjónustuaðilum og fleirum á Norðurlandi vestra. Fyrstu skrefin í að svara þessari spurningu má segja að hafi verið tekin við gerð Hjartar Smárasonar á stöðugreiningu fyrir svæðið fyrir þremur árum. Eftir það var komið að því að nýta það sem þar kom fram í einhvers konar birtingarmynd út á við. Hér sameinuðum við krafta okkar með Markaðsstofu Norðurlands, sem um hríð hafði litið til þess að gera svæðinu hærra undir höfði á einhvern hátt - „lyfta því upp“. Í þeirri vinnu voru fleiri aðilar innan ferðaþjónsutunnar kallaðir að borðinu og nú á allra seinustu stigum hafa utanaðkomandi markaðssérfræðingar farið höndum um verkið. Nú hyllir undir endanlega útkomu og hana langar okkur að sýna á opnum fundi í Krúttinu á Blönduósi mánudaginn 12. október klukkan 18:00. Þar verður „kíkt í pakkann“ og skipst á skoðunum um innihaldið, en auðvitað getur þetta ekki gerst á fastandi maga og því verður einnig boðið upp á súpu.
Fundurinn er opinn öllum, svo við hlökkum til að sjá ykkur og endilega að skrá sig til þátttöku
hér!