3. september 2026
Kynning á nýrri skýrslu um meðhöndlun lífúrgangs á Íslandi
Mánudaginn 31. ágúst, fór fram kynningarfundur á nýrri skýrslu um meðhöndlun lífúrgangs á Íslandi. Skýrslan var unnin fyrir Samband íslenskra sveitarfélaga og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið af Stefáni Gíslasyni hjá Umhverfisráðgjöf Íslands. Þátttaka á fundinum var afar góð og augljóst að viðfangsefnið er sveitarfélögunum hugleikið.
Meðal þess sem fram kom á fundinum er að áætlað magn matarúrgangs sem fellur til á landinu á ári eru tæp 44.000 tonn en aðeins rúmum 20.000 tonnum er nú sérsafnað og fara í vinnslu. Vísbendingar eru um að gera mætti betur í sérsöfnun lífúrgangs frá lögaðilum og bæta úr söfnun og meðhöndlun á garðaúrgangi.
Skýrslan varpar ljósi á það að nauðsynleg uppbygging innviða er misjöfn eftir landshlutum en líklegt sé að svæðisbundin uppbygging innviða sé fýsilegust.
Á heimasíðu Sambandsins má nálgast skýrsluna til að rýna frekar í niðurstöðurnar.