18. júní 2026

Karólína Elísabetardóttir sæmd fálkaorðunni

Karólína Elísabetardóttir, sem er bóndi í Hvammshlíð í Húnabyggð, var sæmd í dag hinni íslensku fálkaorðu fyrir frumkvöðlastarf í baráttunni gegn riðu.

Alls voru 14 einstaklingar sæmdir fálkaorðunni í dag. 

Þetta er verðskulduð viðurkenning sem henni er veitt fyrir mikilvægt framlag til rannsókna, uppbyggingu þekkingar og þróunar í þágu íslenskrar sauðfjárræktar. Starf Karólínu hefur haft gríðarleg áhrif í baráttunni gegn riðu hér á landi og hefur mikil áhrif á sauðfjárrækt á Íslandi til framtíðar.



Á Norðurlandi vestra er rík ástæða til að fagna þessum heiðri og óskar SSNV Karólínu innilega til hamingju með þessa verðskulduðu viðurkenningu