Uppbyggingarsjóður
Umsóknarfrestur fyrir árið 2027 er 16. september – 21. október kl. 14:00.
Verkefnin geta verið af ýmissi stærðargráðu og er fólk hvatt til að sækja um. Sótt er um í gegnum umsóknarkerfi Rannís: Sæktu um hér.
Tilgangur Uppbyggingarsjóðs er að styrkja annars vegar menningar- og samfélagsverkefni og hins vegar atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefni á Norðurlandi vestra. Sjóðurinn er samkeppnissjóður og eru umsóknir metnar út frá þeim markmiðum og áherslum sem koma fram í Sóknaráætlun Norðurlands vestra. Með samkeppnissjóði er átt við að samkeppni milli verkefna ræður úthlutun, þ.e. bestu verkefnin að mati úthlutunarnefndar hljóta brautargengi.
Úthlutun 2026
Alls bárust 100 umsóknir fyrir árið 2026 þar sem óskað var eftir rúmlega 228 milljónum króna í styrki, en til úthlutunar voru rúmar 76 milljónir. Umsóknir skiptust þannig: 45 atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefni, 43 menningar- og samfélagsverkefni og 12 umsóknir um stofn- og rekstrarstyrki.
Á fundi úthlutunarnefndar 12. desember 2025 var ákveðið að úthluta 76 milljónum króna til 65 verkefna: 22 atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefni fengu tæplega 39 milljónir, 35 menningar- og samfélagsverkefni rúmlega 25 milljónir og 8 stofn- og rekstrarstyrkir samtals 12 milljónir. Alla styrkhafa má sjá í töflunni neðar á síðunni.
Styrkhafar 2026
Úthlutunarnefnd Uppbyggingarsjóðs Norðurlands vestra ákvað á fundi sínum 12. desember 2025 að veita 65 verkefnum styrk. Alls bárust 100 umsóknir þar sem óskað var eftir rúmlega 228 milljónum króna. Nánar má lesa um úthlutunina í úthlutunarskýrslu 2026 (PDF).
Smelltu á verkefni til að sjá lýsingu á því.
| Styrkþegi | Verkefni | Svið | Upphæð |
|---|---|---|---|
| Framhugsun ehf. | Rabarbaron – markaðssókn | Atvinnuþróun og nýsköpun | 3.000.000 kr. |
| Rabarbaron er nýsköpunarverkefni sem framleiðir rabarbara í myrkvuðu umhverfi og afurðir úr rabarbara með sérstöðu og einstökum bragðgæðum. Markaðssóknin felur í sér uppbyggingu vörumerkisins Rabarbaron, kynningu á hrávöru og þróun afleiddra matvæla í samstarfi við aðila í greininni. Með áherslu á sjálfbærni, nýnæmi og staðbundna verðmætasköpun er markmiðið að koma vörunni á markað, skapa störf og byggja undir vöxt til lengri tíma. | |||
| Ísponica ehf. | HringrásHús: Innovating Food Systems | Atvinnuþróun og nýsköpun | 2.500.000 kr. |
| This project expands Ísponica’s circular food production by utilizing aquaculture waste alongside mushroom and snail cultivation. Located in a repurposed fish-processing facility in Hofsós, it integrates sustainability, rural innovation and international collaboration with experts from Inis Escargot (Ireland) and Main Brook Research and Development Corporation (Canada). The goal is to strengthen food security, resource use and knowledge exchange for rural communities in cold-climate regions. | |||
| Farskólinn – miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra | Frá matarhandverki til markaðar | Atvinnuþróun og nýsköpun | 3.000.000 kr. |
| Verkefnið felur í sér að þróa og styðja smáframleiðendur í að umbreyta hugmyndum og handverksfærni í markaðshæfar vörur og þjónustu. Í boði verða sérhæfð námskeið og ráðgjöf um vörumerkjagerð, umbúðahönnun, markaðssetningu, gæðavottanir og samstarf við ferðaþjónustu. Lögð verður áhersla á að styðja við áframhaldandi starf smáframleiðenda sem hófu vegferð sína í matarhandverksnámi Farskólans, og að byggja upp net þeirra á svæðinu. | |||
| Arnrún Bára Finnsdóttir | Markaðssetning Rökkva Retreat ehf. | Atvinnuþróun og nýsköpun | 3.000.000 kr. |
| Verkefnið felur í sér markaðssetningu Rökkva Retreat ehf. Gestir sofa undir stjörnubjörtum himni og norðurljósum með útsýni yfir svarta sandfjöru og Húnaflóann. Sérstaða náttúrunnar í Húnabyggð verður lykil aðdráttarafl og úr verður einstök upplifunargisting sem tengir gesti beint við náttúruna og eflir atvinnulíf á Norðurlandi vestra. Til að ná markmiðum þarf að fara í mikla uppbyggingu á svæðinu í innviðum og húsunum sjálfum, þróa vörumerki, smíða vefsíðu og markaðssetja fyrirtækið vel. | |||
| Sjávarlíftæknisetrið BioPol ehf. | Hatchery development for commercial seaweeds | Atvinnuþróun og nýsköpun | 4.000.000 kr. |
| The proposed hatchery will develop region-specific genetic lines of seedstock from Icelandic Laminariales collected around Iceland, gather additionally environmental data to be able to mimic the suitable habitat for artificial sporogenesis in the laboratory, followed by sori isolation, spore release, subsequent culturing of the gametophytes and seeding. In parallel, collected sporophytes will be analyzed for their biochemical composition to obtain region-specific quality baseline data. | |||
| Sjávarlíftæknisetrið BioPol ehf. | Circular Mushroom Cultivation from Local Residues | Atvinnuþróun og nýsköpun | 1.500.000 kr. |
| Companies and horse owners currently pay for the disposal of cardboard and horse manure, while future seaweed farming in Northwest Iceland also generates waste that requires management. This pilot project aims to transform these waste streams into substrates for mushroom cultivation, repurposing them for productive use. The expected outcomes include demonstrating circular bio-resource use and strengthening the regional economy through innovation and sustainable employment. | |||
| Elínborg Erla Ásgeirsdóttir | Breiðargerði garðyrkjustöð, móttökusvæði | Atvinnuþróun og nýsköpun | 1.250.000 kr. |
| Verkefnið gengur út á að standsetja móttökusvæði utandyra. Markmiðið er að geta tekið á móti hópum til kynningar, fræðslu og að geta boðið fólki að taka upp grænmeti sjálft gegn greiðslu. Svæðið verður afmarkað, þakið upphækkuðum beðum með góðu gönguplássi á milli þeirra. | |||
| Elínborg Erla Ásgeirsdóttir | Vallhumall, óáfengur staðgengill freyðivíns | Atvinnuþróun og nýsköpun | 2.500.000 kr. |
| Verkefnið gengur út á að þróa uppskriftir óáfengra gæðadrykkja sem komið geta í stað freyðivíns og léttvíns við hátíðleg tilefni. Vallhumalsblóm mun leika þar aðalhlutverkið, grunnhráefnið í drykkjunum er vallhumalssíróp, en fleiri jurtum verður bætt við til að ná fram flóknari bragðtónum, tannínum og sýru. Verkefnið byggir á sterkum grunni vöruþróunar, ræktunar- og uppskerutilrauna og útlitshönnunar sem þegar hefur farið fram í tengslum við verkefnið "Vallhumall". | |||
| LÓA Travel ehf. | Ferðir með leiðsögn um Norðurland vestra | Atvinnuþróun og nýsköpun | 3.000.000 kr. |
| Verkefnið felur í sér að þróa söluhæfa vöru sem er tilbúin á markað, pakkaferðir sem hægt er að hefja sölu á, strax á árinu 2026. Stefnt er að því að leggja áherslu á "hægari ferðalög", t.d. gönguferðir, hestaferðir, hjólaferðir osfrv. þar sem ferðast er td. um Norðurstrandaleið (Arctic Coast Way) með öðrum fararkosti en bílaleigubílum eða rútum. Litið er til fyrirmynda t.d. á Írlandi og í Noregi, þar sem slíkar ferðir hafa gengið vel. Lögð er áhersla á að tengja útivist við menningu og sagnaarf. | |||
| ahsig ehf. | Sögu- og sælkeraferðir í Skagafirði | Atvinnuþróun og nýsköpun | 2.300.000 kr. |
| ahsig ehf. mun útbúa og bjóða uppá sögu- og sælkeraferðir í Skagafirði allt árið. Í verkefninu felst að ferðamenn geti keypt heildarpakka af mismunandi ferðaþjónustuaðilum á svæðinu og efla þannig svæðið í heild. Einnig er markmiðið að auðvelda ferðamönnum að eiga viðskipti við ferðaþjónustuaðila á svæðinu. | |||
| Extis ehf. | Þróun og nýsköpun í hestavöruhönnun | Atvinnuþróun og nýsköpun | 900.000 kr. |
| Sveifla mun rannsaka þarfir íslenskra hestamanna með virkum samræðum við tamningamenn og aðra hestamenn á svæðinu. Út frá niðurstöðum verða hannaðar og framleiddar prufugerðir af 3-4 nýjum vörum sem verða þolreyndar við raunverulegar aðstæður og verða klárar í fjöldaframleiðslu. Verkefnið mun styrkja samkeppnisstöðu fyrirtækisins, auka vöruframboð og leggja grunn að langtíma vexti. | |||
| Evelyn Ýr Kuhne | Nafna- og litabanki íslenska fjárhundsins | Atvinnuþróun og nýsköpun | 500.000 kr. |
| Verkefnið felur í sér að safna og miðla upplýsingum um liti og nöfn íslenska fjárhundsins. Teknar verða ljósmyndir af hundum með mismunandi litum og myndirnar birtar í gagnagrunni á fjarhundur.is og sýndar á Sögusetri íslenska fjárhundsins. Safnað verður nöfnum og merkingum þeirra á íslensku og ensku til að efla fræðslu, varðveislu og vitund um þjóðarhund Íslands. | |||
| EIMUR | Sniglarækt – námsferð til Írlands | Atvinnuþróun og nýsköpun | 500.000 kr. |
| Verkefnið miðar að því að kynna sniglarækt sem vistvæna og nýskapandi hliðarbúgrein fyrir íslenska bændur. Með því að nýta glatvarma og lífræna hliðarstrauma er stefnt að framleiðslu sem byggir á sjálfbærni og fullnýtingu auðlinda. Verkefnið felur í sér fræðslu, rannsóknir og námsferð til Írlands þar sem þátttakendur fá hagnýta reynslu og innsýn í starfandi sniglabú. Markmiðið er að meta fýsileika ræktunar við íslenskar aðstæður og skapa ný tækifæri til verðmætasköpunar í dreifðum byggðum. | |||
| Laufey Sunna Guðlaugsdóttir | Stúdíó Spinna | Atvinnuþróun og nýsköpun | 500.000 kr. |
| Stúdíó Spinna er smáfyrirtæki sem staðsett verður á bænum Lágmúla í Skagafirði. Þar verða notaðar peysur og ullarflíkur teknar í sundur, garnið hreinsað, jafnvel litað og endurunnið í nýja vöru. Garnið verður selt bæði sem hráefni og í „garnpökkum“ með uppskriftum frá upprennandi hönnuðum undir merkjum Stúdíó Spinna. Markmiðið er að skapa sjálfbært og skapandi handverksverkefni sem dregur úr textílsóun, eflir atvinnu í sveit og tengir saman nýsköpun, menningu og sjálfbærni á Norðurlandi vestra. | |||
| Evelyn Ýr Kuhne | Sögukrókurinn | Atvinnuþróun og nýsköpun | 320.000 kr. |
| Verkefnið snýst um að skapa huggulegt umhverfi á Sögusetri íslenska fjárhundsins, þar sem gestir geta hlustað á sögur og flett í gegnum bækur safnsins. Þetta krefst söfnunar, yfirferðar og úrvinnslu á sögum, sem verða þýddar og lesnar inn hljóðskrár. Markmiðið er að varðveita fjölbreyttar sögur, auka skilning og áhuga á þjóðarhundinum, og hvetja gesti til að dvelja lengur og njóta safnsins. Verkefnið eykur afþreyingu fyrir gesti og styður við heilsársferðaþjónustu. | |||
| Brynleifur G. Siglaugsson | Tónstígur í Hringversskógi | Atvinnuþróun og nýsköpun | 1.000.000 kr. |
| Verkefnið snýst um að hanna, smíða og setja upp það sem þarf fyrir tónstíginn. Í hönnuninni verður ákveðið hvaða hljóðfæri verði sett upp og hvar þau eigi að vera staðsett. Lögð verður áhersla á að hljóðfærin endurspegli sögu og menningu svæðisins. Gert er ráð fyrir að hluti af hljóðfærunum verði smíðuð fyrir þetta verkefni en önnur hljóðfæri (sem eru þegar til) verði útbúin þannig að þau þoli að standa úti allt árið um kring. | |||
| EIMUR | Orkusamfélag Steingerðar | Atvinnuþróun og nýsköpun | 2.000.000 kr. |
| Verkefnið felur í aðalatriðum í sér fimm þætti: 1. Stofnun orkusamfélagsins 2. Vinnslu á grunnþáttum viðskiptaáætlunar 3. Heimsókn sænsks sérfræðings 4. Heimsókn fulltrúa þeirra bænda sem í orkusamfélagið ganga til Kalmar í Svíþjóð til að kynna sér sambærilegar lausnir 5. Samstarfsumleitanir við endursöluaðila á íslenskum smásölumarkaði metanorku. | |||
| Örvar Birkir Eiríksson | Markaðsátak fyrir Selasetur Íslands – selaskoðun í sýndarveruleika | Atvinnuþróun og nýsköpun | 405.165 kr. |
| Þrátt fyrir hagnað tvö síðustu ár er rekstur Selasetursins viðkvæmur og lítið má út af bregða hvað varðar ferðamenn og smávægileg fækkun þeirra gæti breytt hagnaði í tap. Með tilkomu selaskoðunar í sýndarveruleika í byrjun næsta árs eykst verulega aðdráttarafl og virði sýningar Selasetursins sem skilar sér í fleiri gestum og hærra miðaverði. En til þess að það raungerist þarf að koma þessari nýju vöru á framfæri með sterku markaðsátaki. | |||
| Sjávarlíftæknisetrið BioPol ehf. | Living Crimson / Rauðbleikur | Atvinnuþróun og nýsköpun | 1.500.000 kr. |
| Traditional textile dyeing relies heavily on synthetic dyes, causing significant environmental harm, especially through water pollution. This collaborative project aims to address this issue by developing a sustainable natural red dye produced by non-pathogenic bacteria that have been isolated in Iceland. The red dye will be an addition to the purple bacteria-based dye that this collaboration previously has successfully developed. Thus, further expanding the color palette of natural dyes. | |||
| Sigrún Davíðsdóttir | Saunasetrið | Atvinnuþróun og nýsköpun | 1.500.000 kr. |
| Verkefnið Saunasetrið á Hvammstanga miðar að markaðssetningu og þróun heilsu- og vellíðunarseturs við hafið. Starfsemi hefur þegar hafist með prufuhópum og prófun á bókunarkerfi og seremóníum sem byggja á norrænni saunamenningu. Næstu skref eru uppbygging bókunar- og heimasíðu, gerð kynningarefnis, skiltagerð og lýsing á svæðinu. Verkefnið stuðlar að sjálfbærri ferðaþjónustu, eflir samfélagið og styrkir jákvæða ímynd Húnaþings vestra sem áfangastaðar vellíðunar og náttúruupplifunar. | |||
| Kaupfélag Skagfirðinga (svf.) | Sjálfbær nýting hliðarstrauma frá kjötvinnslu KS | Atvinnuþróun og nýsköpun | 3.000.000 kr. |
| Verkefnið felst í að rannsaka, hráefnagreina og þróa gæludýrafóður úr hliðarstraumum frá kjötafurðastöð KS. Markmiðið er að finna hagkvæmar og öruggar vinnsluaðferðir til að nýta næringarríka afurðir sem annars færu í urðun, brennslu eða væru seldar út sem ódýrt hráefni þar sem unnið er úr því verðmæti. Verkefnið stuðlar að sjálfbærni, minni sóun og aukinni verðmætasköpun í matvælaiðnaði. | |||
| Esja Arkitektar ehf. | Sumarhús – einingahús Norðurlands | Atvinnuþróun og nýsköpun | 760.000 kr. |
| Verkefnið felur í sér að þróa nýja vörulínu af sumarhúsum sem byggð verða í verksmiðju á Skagaströnd. Fyrirtækið Verk lausn ehf. hóf nýverið framleiðslu á einingarhúsum og verða fyrstu húsin afhent í byrjun árs 2026. Með verkefninu er ætlunin að auka við framboð af einingarhúsum með því að bjóða einnig sumarhús til sölu. | |||
| USVH | Húni 47. árgangur | Menning og samfélag | 400.000 kr. |
| Húni 46. árgangur kemur út, ef allt gengur að óskum, vorið 2025. Í ritinu verður margs konar fróðleikur úr héraði svo sem; viðtöl, frásagnir, greinar, ljóð, fréttapistlar frá hinum ýmsu svæðum í Húnaþingi vestra auk minningagreina um látna og fl. | |||
| Halldór B. Gunnlaugsson | Höfuðstaður huldufólks – söfnun og skráning sagna | Menning og samfélag | 1.000.000 kr. |
| Verkefnið felst í því að safna saman og skrá sögur af huldufólki í Hegranesi, bæði úr rituðum heimildum og með munnlegri söfnun á hverjum bæ. Sögurnar verða varðveittar og gerðar aðgengilegar á vefsíðu sem helguð er þjóðtrú og huldufólki svæðisins. | |||
| Sögusetur íslenska hestsins | Sögusetur íslenska hestsins á Landsmóti hestamanna | Menning og samfélag | 1.000.000 kr. |
| Verkefnið felur í sér undirbúning, skipulag og kynningu á starfsemi Söguseturs íslenska hestsins á Landsmóti hestamanna 2026. Áhersla verður lögð á lifandi framsetningu og gagnvirkt kynningarefni, sem endurspeglar fjölbreytta starfsemi setursins og eykur vitund um íslenska hestinn sem hluta af menningararfi þjóðarinnar. Kynningin verður hönnuð og skipulögð með það í huga að nýtast setrinu í áframhaldandi fræðslu, kynningum og sýningum í framtíðinni. | |||
| Oddur Sigurðarson | Gufuketill Norrönu – dulmögnuð saga | Menning og samfélag | 500.000 kr. |
| Markmið verkefnisins er að safna og greina heimildir um strand gufuskipsins og sögu gufuketilsins sem hefur legið í fjörunni frá 31. október 1908, með það að leiðarljósi að varðveita og miðla menningararfi svæðisins. Verkefnið felur í sér að taka saman upplýsingar um skipið, uppruna þess, eigendur og smíði, greina heimildir og gögn og setja saman skýra frásögn af atburðarrásinni. Lokaafurðin verður aðgengilegur fræðslutexti á nokkrum tungumálum ásamt myndum, ætlaður fyrir upplýsingaskilti með QR-kóða sem vísar í frekara efni á vef og eykur þannig upplifun gesta og þekkingu á sögu staðarins. | |||
| Hólmfríður Dóra Sigurðardóttir | Agnes – líf, störf og skáldskapur | Menning og samfélag | 145.000 kr. |
| Verkefnið snýst um að sýna líf Agnesar á erfiðum tíma í sögu Íslands. Heiðra og fjalla um líf hennar. Hingað til hefur mest verið fjallað um dauða hennar en ekki líf. Einnig er ætlunin að sýna líf fólks eftir Móðuharðindin og í klafa vistarbanda í bændasamfélagi þessa tíma. Margir listamenn munu gera verk um sögu Agnesar í fjölbreytt efni og túlka þannig þessa mögnuðu konu. | |||
| Ferðamálasamtök Norðurlands vestra | Sagan okkar: Fyrirtæki á Norðurstrandarleið | Menning og samfélag | 800.000 kr. |
| Sögur (e.storytelling) eru mjög vinsælar og áhrifaríkar í ferðaþjónustu í dag. Þessi aðferð er orðin að lykilþætti í markaðssetningu og upplifun gesta. Öll fyrirtæki á Norðurstrandarleið hafa sögu að segja. Að segja sögur af persónulegum tengslum við þetta einstaka svæði, hjálpar til að gæða Norðurstrandarleið lífi. Um það bil 10 fyrirtækjum á Norðurstrandarleið verða gerð góð skil. Farið verður á dýptina og sögu hvers fyrirtækis komið á framfæri á stafrænan hátt, bæði á ensku og íslensku. | |||
| Þorgrímur Ómar Tavsen | Vatnaveröld – smábátasafn | Menning og samfélag | 1.500.000 kr. |
| Sótt er um styrk fyrir þremur þáttum: Að ljúka vinnu við aðstöðuhús sem er stýrishúsið af Maríu Júlíu, fyrsta varðskipi Vestfirðinga, þar verður bæði salernis- og kaffiaðstaða. Einnig stendur til að vinna við skemmu sem hýsir innisafnið. Þar þarf að klæða loft og gólf í skemmu sem hýsir safnmuni sem ekki standa úti. Þá á að vinna að viðhaldi á bátum í eigu safnsins og verja þá fyrir veðri og vindum. | |||
| Húnabyggð | Vatnsdæla á Refli – stafræn upplifun | Menning og samfélag | 1.800.000 kr. |
| Verkefnið felur í sér að ljósmynda og stafræna 47 metra langan útsaumsrefil sem segir Vatnsdælasögu. Úr verður gagnvirk sýning á snertiskjá þar sem gestir geta skoðað refilinn, hlustað á upplestur Vatnsdælasögunnar, og fræðst um svæðið og sögu þess. Sýningin verður færanleg, aðgengileg og getur þannig nýst í bæði kennslu og kynningu á menningararfi svæðisins. | |||
| Húnaþing vestra | Ljóðaleið 2025 | Menning og samfélag | 800.000 kr. |
| Framleiða á sjö skilti með ljóðum eftir Eyrúnu Ingadóttur til að setja upp innan bæjar á Hvammstanga. Eitt ljóð verður á hverju skilti og verða þau öll sýnd á fjórum tungumálum, þ.e. íslensku, ensku, þýsku og frönsku. Skiltin verða sett upp á völdum stöðum meðfram gönguleiðinni sem er frá Kirkjuhvammi að Hvammstangahöfn. | |||
| Fornverk ehf. | Varðveisla og skjalfesting torfhefða í Skagafirði | Menning og samfélag | 1.208.800 kr. |
| Verkefnið miðar að því að varðveita og skjalfesta þá verkþekkingu sem tengist torfskurði í Skagafirði. Lögð er áhersla á að greina hvaða gróðurtegundir og jarðvegsskilyrði gefa til kynna torf af bestu gæðum til húsagerðar. Safnað verður gögnum um jarðveg, gróður, sýrustig (pH-gildi), raka og hitastig, með það að markmiði að þróa aðferð til að meta torf út frá ytri einkennum. Niðurstöður verða teknar saman í handbók og kynntar á sýningu, í rafrænu formi og í gegnum fjölmiðla og samfélagsmiðla. | |||
| Golfklúbburinn Ós | Veggjalist í Vatnahverfi | Menning og samfélag | 346.358 kr. |
| Golfvöllur GÓS í Vatnahverfi er hluti af ört vaxandi útivistarsvæði með gönguleiðum og skógrækt. Markmið verkefnisins er að fegra og endurnýja vélageymslu klúbbsins með metnaðarfullum vegglistaverkum eftir heimamenn, bæði fullorðna og ungmenni, og tengja þannig viðhald og listsköpun. Markmiðið er að efla ímynd svæðisins, bæta upplifun gesta og auka aðsókn á völlinn. Verkefnið nýtir hæfni heimamanna, styrkir menningarlíf þar sem lítið er um sýnilega myndlist og skapar jákvæða umfjöllun. | |||
| Jóhann Daði Gíslason | Jólin heima | Menning og samfélag | 1.000.000 kr. |
| Jólatónleikarnir Jólin heima eru skagfirskir jólatónleikar sem færa jólaandann til fólksins í samfélaginu og auka menningarlegt gildi Skagafjarðar. Á tónleikunum koma fram tónlistarfólk alls staðar að úr firðinum okkar, en gildi þessara tónleika er að halda í skagfirska tónlistarhæfileika. Á tónleikunum verða spiluð jólalög bæði frumsamin og hin frægu jólalög sem allir kunna og geta sungið með. Þetta verður sjötta árið sem tónleikarnir verða haldnir. | |||
| Félag áhugafólks um íslenska jaðartónlist | Norðanpaunk 2026 | Menning og samfélag | 400.000 kr. |
| Norðanpaunk er grasrótartónlistarhátíð sem byggir á nýsköpun, sjálfbærni og öruggara rými fyrir öll. Meðan á hátíðinni stendur breytist Laugarbakki í samfélag þar sem listafólk og aðrir þátttakendur hátíðarinnar sameinast í að deila og njóta jaðartónlistar. Hátíðin leggur áherslu á að veita ungum, óvanalegum, íslenskum hljómsveitum brautargengi með aðstoð útvaldra erlendra gesta. | |||
| Karlakórinn Heimir | Karlakórinn Heimir – tónleikahald 2026 | Menning og samfélag | 200.000 kr. |
| Verkefnið felst í tónleikahaldi á Norðurlandi vestra á starfsvetrinum 2025-26. Um verður að ræða tónleika í Blönduóskirkju, sem ráðgert er að halda í febrúar 2026. | |||
| Sigurdís Sandra Tryggvadóttir | Bergmál fjallanna, tónar frá Norðurlandi vestra | Menning og samfélag | 500.000 kr. |
| Haustið 2026 verða haldnir þrennir útgáfutónleikar plötunnar Bergmál fjallanna / Echoes of the Mountains í Hvammstangakirkju, Blönduóskirkju og Miðgarði. Sigurdís hefur samið tónlistina, bæði verk með og án söngs, þar sem sönglögin eru við ljóð Jónasar Tryggvasonar. Á plötunni hljóma einnig tvö lög eftir Jónas sjálfan. Sigurdís Trio flytur tónlistina og býður íbúum að upplifa lifandi tónlist sem sprettur upp úr þeirra eigin landslagi og menningararfi. Aðgangur að tónleikunum verður ókeypis. | |||
| Skagfirski kammerkórinn | Skagfirski kammerkórinn | Menning og samfélag | 400.000 kr. |
| Á degi íslenskrar tungu, þann 16. nóvember, er sett saman dagskrá með kennara og nemendum 7. bekkjar Varmahlíðarskóla. Jólatónleikar verða haldnir í desember bæði á Blönduósi og Hólum og vortónleikar á sumardaginn fyrsta. Kórinn hefur lagt metnað í að halda Tónleika Dags íslenskrar tungu og jólatónleikana án aðgangseyris - aðeins er tekið við frjálsum framlögum til góðgerðarmála. Selt er inn á vortónleika kórsins. | |||
| Félag eldri borgara í Húnaþingi vestra | Vor- og jólatónleikar 2026 | Menning og samfélag | 400.000 kr. |
| Æfðar verða upp tvær söngdagskrár sem fluttar verða í Félagsheimilinu á Hvammstanga, Hvammstangakirkju eða á öðrum hentugum stað. Sú fyrri verður í apríl eða maí 2026 og sú síðari í desember 2026. Æft er vikulega með kórstjóra og meðleikara frá janúar til apríl og síðan september til desember. Tíðari æfingar eru þegar dregur nær tónleikum. Eins kemur kórinn fram við fleiri tilefni. t.d. á skemmtunum hjá félaginu og á degi aldraðra. | |||
| Heimilisiðnaðarsafnið Blönduósi | Sumarsýning/sérsýning Heimilisiðnaðarsafnsins | Menning og samfélag | 400.000 kr. |
| Markmið sumarsýningar Heimilisiðnaðarsafnsins er að auka fjölbreytileika í sýningarflóru safnsins ásamt því að auðga menningarlíf héraðsins. Í þetta sinn mun Hadda (Guðrún Hadda Bjarnadóttir) gefa okkur innsýn í fjölbreyttan listvefnað. Hadda er afar fjölhæf listakona og vinnur gjarnan verk sem hafa notagildi hvort sem um er að ræða vefnað, myndlist, handiðn eða ljósmyndun. Á þessari sýningu verða nær eingöngu ofin verk, myndvefnaður og verk unnin á venjulegn vefstól. | |||
| Menningarfélag Húnaþings vestra | Dansskóli Menningarfélags Húnaþings vestra | Menning og samfélag | 1.400.000 kr. |
| Verkefnið felst í reglulegu dansnámi fyrir börn og ungmenni á Hvammstanga þar sem kennt er einu sinni í viku í tíu vikur á hvorri önn, alls tvær annir á ári. Námið fer fram í Stúdíó Handbendi og nær til nemenda á leik- og grunnskólaaldri. Kennslan fer fram undir handleiðslu reyndra og verðlaunaðra kennara og spannar fjölbreytta dansstíla, svo sem street, jazz, hip hop og söngleikjadans. Verkefnið eflir hreyfifærni, sjálfstraust og félagslega tengslamyndun barna og unglinga. | |||
| Skagafjörður | Indriði G. Þorsteinsson 100 ára | Menning og samfélag | 600.000 kr. |
| Indriði G. verður heiðraður með málþingi Í Miðgarði á afmælisdegi hans, laugardaginn 18. apríl 2026. Þar verður fjallað um Skagfirðinginn, rithöfundinn, blaðamanninn og einstaklinginn Indriða. Flutt verða fræðileg erindi, lesið úr verkum hans og kvikmyndir byggðar á bókum hans sýndar. Jafnframt verður boðið upp á ferð með leiðsögn um æsku- og söguslóðir Indriða og ferðaþjónusta svæðisins tengd inn í viðburðinn. Einnig verður útbúið sögukort og nemendum grunn- og framhaldsskóla boðið á söfnin. | |||
| Rabarbarafélagið | Rabarbarahátíð í gamla bænum á Blönduósi | Menning og samfélag | 300.000 kr. |
| Rabarbarahátíð í Gamla bænum á Blönduósi sameinar listir, hreyfingu og menningu undir þemanu rabarbari. Á dagskrá verða listasmiðjur, Samhjól, matarmarkaður, fræðsluerindi, fræðslugöngur og tónlist. Markmið er að efla samstöðu, sjálfbærni og jákvætt samfélag á Blönduósi og laða ferðamenn að svæðinu auk þess að skapa vettvang fyrir listamenn, framleiðendur og þjónustuaðila til að kynna og selja vörur og hugmyndir. | |||
| Skagafjörður | Hinsegin hátíð í Skagafirði | Menning og samfélag | 650.000 kr. |
| Hinsegin hátíð er ný menningar- og samfélagshátíð sem fer fram í fyrsta sinn árið 2026 í Skagafirði. Hátíðin er vettvangur fyrir öll til að koma saman, miðla reynslu, auka vitund og fagna fjölbreytileika. Um er að ræða hátíð sem eflir menningu og jafnrétti á svæðinu auk þess að auka sýnileika hinsegin samfélagsins í Skagafirði. | |||
| Byggjum upp Hofsós og nágrenni | Bæjarhátíðin Hofsós heim 2026 | Menning og samfélag | 750.000 kr. |
| Hofsós heim er bæjarhátíð á Hofsósi dagana 18.-21. júní. Þá er fjölbreytt menningardagskrá í þorpinu og það fyllist af gestum. Fyrirtæki bjóða fram þjónustu sína, félagasamtök taka þátt í dagskránni með fjölbreyttum hætti og íbúar sameinast í hátíðarhöldum. Bæjarhátíð á Hofsósi á sér áratuga sögu og má alls ekki leggjast af enda er mikilvægi hennar fyrir sjálfsmynd íbúa gríðarleg, þorpið verður aðlandi og eftirsóknarvert að fara þangað. | |||
| Húnabyggð | Prjónagleðin 10 ára 2026 | Menning og samfélag | 600.000 kr. |
| Prjónagleðin 2026 verður afmælishátíð þar sem mikil áhersla verður lögð á faglega og metnaðarfulla dagskrá. Námskeið og fyrirlestrar eru hryggjarstykkið í hátíðinni og mikilvægt að bjóða upp á það sem helst er að gerast í prjónaheiminum. Garntorgið er hjarta hátíðarinnar með iðandi mannlífi, kaffihúsi og glæsilegu markaðstorgi. Prjónatengdir viðburðir eins og sýningar, heimboð, prjónamessa og kvöldvökur eru fastir liðir auk þess sem gestir geta heimsótt textíltengda starfsemi á Blönduósi. | |||
| Unglist í Húnaþingi | Eldur í Húnaþingi 2026 | Menning og samfélag | 500.000 kr. |
| Eldur í Húnaþingi er árleg bæjarhátíð í Húnaþingi vestra sem hefur styrkt samfélagslíf svæðisins með því að efla samstöðu, menningu og sköpun íbúa. Hátíðin árið 2026 verður fjölbreytt, með viðburðum fyrir alla aldurshópa, þar á meðal tónleikum, listviðburðum, íþróttum, handverksmarkaði og afþreyingu fyrir börn. Samstarf við félagasamtök og fyrirtæki á svæðinu verður lykillinn að vel heppnaðri framkvæmd. Hátíðin stuðlar að aukinni þátttöku íbúa, jákvæðri umfjöllun um svæðið og hefur jákvæð áhrif. | |||
| Leikfélag Sauðárkróks | Með fullri reisn | Menning og samfélag | 600.000 kr. |
| Verkefnið byggist á því að leikstjóri er ráðinn til að koma verkinu á svið. Í verkefninu taka þátt leikarar ásamt fjölda fólks sem kemur að uppsetningunni á einn eða annan hátt. Æfingatímabil stendur yfir í átta vikur með undirbúningsfundi og þá tekur við sýningatímabil í þrjár vikur. Til þess að verkið komist á svið þarf á æfingatímabilinu að æfa leikritið, vinna í leikmynd, leikmunum, búningum, sminki, leiklýsingu, ljósum, hljóðum, auglýsingum, markaðssetningu og miðasölu. | |||
| Leikflokkur Húnaþings vestra | Addams fjölskyldan | Menning og samfélag | 1.000.000 kr. |
| Verkefnið mun leiða saman frábæran og hæfileikaríkan hóp Húnvetninga sem í sameiningu munu setja upp söngleikinn Addams family. Verkið er frábrugðið fyrri verkum leikflokksins ef horft er til tónlistarinnar. Með söng, dans og leik mun hópurinn ná að töfra fram bæði fyndinn og dramantískan söguþráð beint til áhorfandans. | |||
| Handbendi Brúðuleikhús ehf. | Hvammstangi International Puppetry Festival 2026 | Menning og samfélag | 1.900.000 kr. |
| Hvammstangi International Puppetry Festival er viðurkennt sem ein af tíu helstu menningarhátíðum á landsbyggðinni á Íslandi. Fimmta útgáfa hátíðarinnar er fyrirhuguð 26.– 28. júní 2026. Hátíðin tekur á móti allt að sjö sýningarhópum frá öllum heimshornum, eða um 30 listamönnum, sem koma til Hvammstanga til að halda sýningar, námskeið fyrir börn og fullorðna, listamannafyrirlestra, blanda geði og efla tengsl innbyrðis og fá tækifæri til að hitta og vinna með áhorfendum þessa daga sem hátíðin stendur. | |||
| Anna Árnína Stefánsdóttir | Sögur Hringversskottu | Menning og samfélag | 400.000 kr. |
| Verkefnið snýst um að semja og setja upp útileiksýningu. Einleik þar sem markmiðið er að draga fram þjóðsögur svæðisins með lifandi miðlun. Sögusviðið er Hringversskógur, þar sem Hringversskotta tekur á móti gestum og segir þeim sögur, bæði af sér og öðrum. Einleikurinn verður sýndur á Sæluviku Skagfirðinga 2026. | |||
| Leikfélag Sauðárkróks | Blái hnötturinn | Menning og samfélag | 800.000 kr. |
| Verkefnið byggist á því að leikstjóri er ráðinn til að koma verkinu á svið. Í verkefninu taka þátt leikarar ásamt fjölda fólks sem kemur að uppsetningunni á einn eða annan hátt. Æfingatímabilið stendur yfir í átta vikur og þá tekur við sýningartímabil í þrjár vikur. Til þess að verkið komist á svið þarf á æfingatímabilinu að æfa leikritið, vinna í leikmynd, leikmunum, búningum, sminki, leiklýsingu, hljóðum, auglýsingum, markaðssetningu og miðasölu. | |||
| Farskólinn – miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra | Viðhald og miðlun matarhandverks á Norðurlandi vestra | Menning og samfélag | 1.000.000 kr. |
| Verkefnið felst í að efla og viðhalda íslensku matarhandverki á Norðurlandi vestra með fræðslu og verklegum námskeiðum. Lögð er áhersla á að varðveita hefðbundna þekkingu, miðla henni milli kynslóða og tengja hana við nútímalega framleiðslu og sjálfbærni. Verkefnið styrkir samfélag, menningu og atvinnulíf á svæðinu. | |||
| Skagafjörður | Grúsk-námskeið | Menning og samfélag | 104.800 kr. |
| Héraðsbókasafn og Héraðsskjalasafn Skagfirðinga taka höndum saman og halda námskeið í grúski. Námskeiðið er ætlað þeim sem vilja kynna sér uppruna sinn og umhverfi og grúska sér til ánægju. Með þessu móti gerum við íbúum svæðisins kleift að nýta sér þann mikla fróðleik sem söfnin hafa að geyma ásamt því að kenna þeim að nýta sér þá gagnagrunna sem finna má á netinu og hvernig þeir geta lagt sitt af mörkum við varðveislu á sögu samfélagsins sem þeir búa í. | |||
| Herdís Guðlaug R. Steinsdóttir | Dagur vísindanna á Skagaströnd | Menning og samfélag | 400.000 kr. |
| Verkefnið Dagur Vísindanna býður nemendum unglingastigs Höfðaskóla að fræðast um tækni og vísindi á lifandi og skemmtilegan hátt með því að heimsækja vísindafólk sem leiðir nemendur í gegnum verkleg námskeið. Fyrsti Dagur Vísindanna verður haldinn vorið 2026 hjá BioPol á Skagaströnd með þemað “ósýnilegir heimar”. Þar munu nemendurnir kynnast forritun og fræðast um svifþörunga. Markmið verkefnisins er að glæða forvitni, efla sjálfstraust og hvetja nemendur til frekara náms. | |||
| Byggðasafn Skagfirðinga | Matarkistan Skagafjörður | Menning og samfélag | 1.300.000 kr. |
| Verkefnið styrkir staðbundna matvælaframleiðslu í Skagafirði með því að hvetja og styðja framleiðendur við vöruþróun og nýsköpun. Matarkistan tengir saman framleiðendur og neytendur, stuðlar að auknum sýnileika á markaði og eykur sjálfbærni í matvælaframleiðslu. Með þátttöku á viðburðum á borð við Jólamarkað í Hörpu og Landbúnaðarsýninguna veitir Matarkistan framleiðendum vettvang til að kynna staðbundnar vörur á landsvísu. Verkefnið styður smáframleiðendur við að koma vörum á markað. | |||
| Kakalaskáli ehf. | Kakalaþing | Menning og samfélag | 300.000 kr. |
| Í Kakalaskála hafa verið haldin málþing nánast árlega frá árinu 2013, í samvinnu við Árnastofnun, Háskóla Íslands og einstaka fræðimenn. Guðrún Ingólfsdóttir fræðimaður hefur skipulagt og stýrt þingunum. Mikill fengur er að slíku menningarstarfi á Norðurlandi vestra og hafa aðstandendur Kakalaskála stutt dyggilega við framtakið og lagt því til starfsfólk og húsnæði. Nú er lag að festa verkefnið frekar í sessi, enda enginn vafi á að málþingin hafa verið menningarlífi svæðisins mikil lyftistöng. | |||
| Verslunarminjasafnið á Hvammstanga | Stofn- og rekstrarstyrkur | Stofn- og rekstrarstyrkir | 600.000 kr. |
| Sótt er um rekstrarstyrk til þess að styðja við rekstur Verslunarminjasafnins Bardúsu sem staðsett er á Hvammstanga og standa straum af kostnaði, s.s. launakostnaði starfsmanna, fasteignagjöldum, hita, rafmagni, bókhaldskostnaði, viðgerðum á húsnæði og öðru tilfallandi. Verslunarminjasafnið ásamt Bardúsu, en svo nefnist handverkssalan, hefur verið opið yfir sumarmánuðina og nú síðustu ár frá maí til 15. október. Einnig er opið fjórar helgar fyrir jól, en annars er vetraropnun eftir samkomulagi. | |||
| Sögusetur íslenska hestsins | Stofn- og rekstrarstyrkur | Stofn- og rekstrarstyrkir | 2.000.000 kr. |
| Verkefnið felur í sér rekstur og viðhald Söguseturs íslenska hestsins ásamt eflingu starfseminnar árið 2026 með tilliti til settra markmiða. Lögð verður áhersla á endurbætur á sýningum, hljóðleiðsögn og fræðslu- og kynningarstarfi setursins. Unnið verður að markvissri uppbyggingu í samvinnu við stofnaðila og aðila í hesta- og ferðaþjónustu. Með því styrkist grunnstarfsemi setursins og staða Hóla sem menningar- og fræðslumiðstöð íslenska hestsins. | |||
| Heimilisiðnaðarsafnið Blönduósi | Stofn- og rekstrarstyrkur | Stofn- og rekstrarstyrkir | 1.600.000 kr. |
| Sótt er um rekstrarstyrk til stuðnings við rekstur Heimilisiðnaðarsafnsins. Safnið er viðurkennt safn sem starfar í samræmi við safnalög nr. 141/2011. Safnið þarf að uppfylla fjölmörg skilyrði bæði um eignarhald og ábyrgð í rekstri sem Safnaráð skilgreinir og metur. Eigandi safns skal tryggja safninu fjárhagsgrundvöll fyrir eðlilega starfsemi þess smbr. ákvæði 1. mgr. 10 gr. safnalaga. | |||
| Selasetur Íslands | Stofn- og rekstrarstyrkur | Stofn- og rekstrarstyrkir | 1.600.000 kr. |
| Þrátt fyrir hagnað tvö síðustu ár er rekstur Selaseturs Íslands viðkvæmur og lítið má útaf bregða hvað varðar ferðamenn og smávægileg fækkun þeirra gæti breytt hagnaði í tap. Blikur eru á lofti með ferðamenn frá Bandaríkjunum á næsta ári, sem er einn af (ef ekki sá stærsti) gestahópur okkar. Því er nauðsynlegt að halda áfram að þróa SSÍ og tryggja tekjur þess með fjölbreyttum hætti. | |||
| Þorbjörg Inga Ásbjarnardóttir | Stofn- og rekstrarstyrkur | Stofn- og rekstrarstyrkir | 1.500.000 kr. |
| Markmiðið er að breyta og endurbyggja gömul útihús sem standa á jörðinni Syðri-Þverá í aðstöðu og sýningarsal fyrir ýmiss konar listasýningar, tónlistarviðburði og annars konar lista- og menningartengda atburði. Einnig verður þar aðstaða fyrir kaffi- og veitingasölu og salerni. Auk þess eru áform um að í hluta rýmisins yrði útbúið vinnurými, gistirými og aðstaða fyrir listamenn víða að sem gætu komið og dvalið á staðnum og unnið að listsköpun sinni allt árið um kring, þekkt sem listamannaresidens eða listamannaaðstaða. | |||
| Búminjasafnið Lindabæ | Stofn- og rekstrarstyrkur | Stofn- og rekstrarstyrkir | 700.000 kr. |
| Markmið verkefnisins er að finna, kaupa, sækja, gera upp og varðveita gamlar dráttarvélar ásamt ýmsum tækjum sem þeim tilheyra. Jafnframt verður unnið að því að viðhalda og bæta sýningu á mjaltatækjum frá síðastliðinni öld. Á vorin verður sett upp sýning á þeim vélum og munum sem til eru, en hún verður tekin niður að nýju að hausti. Á opnunartíma safnsins verður gert ráð fyrir tveimur starfsmönnum í um það bil þrjá mánuði yfir sumartímann. Að lokum verður lögð áhersla á kynningu safnsins með það að markmiði að fjölga gestakomum. | |||
| Menningarfélagið Spákonuarfur | Stofn- og rekstrarstyrkur | Stofn- og rekstrarstyrkir | 2.000.000 kr. |
| Menningarfélagið Spákonuarfur stendur að fjölbreyttri menningar- og fræðslustarfsemi sem tengist arfleifð Þórdísar spákonu á Skagaströnd. Þar er boðið upp á sýningu og söguleiðsögn í Spákonuhofinu þar sem fjallað er um Þórdísi spákonu, sem getið er um í fjórum Íslendingasögum og þjóðsögum. Einnig er lögð áhersla á upplifunarferðamennsku undir yfirskriftinni Spár og spádómar, þar sem gestum er boðin fræðsla um spádóma og jafnframt spáð fyrir þeim. Félagið veitir handverksfólki á svæðinu vettvang til að kynna og koma vörum sínum á framfæri og vinnur jafnframt að því að þjálfa upp sögufólk til að segja sögur og viðhalda sagnaarfinum. Auk þess annast félagið rekstur og viðhald húsnæðis og stendur fyrir annarri menningarstarfsemi, svo sem sýningum listamanna og öðrum tengdum viðburðum. | |||
| Kakalaskáli ehf. | Stofn- og rekstrarstyrkur | Stofn- og rekstrarstyrkir | 2.000.000 kr. |
| Aðalmarkmið verkefnisins er að Kakalaskáli sé opinn og áhugaverður áfangastaður er miðlar sögu Sturlungaaldar (13. aldar) í gegnum sögu- og listasýningu með hljóðleiðsögn, með kastljósi á sögu Þórðar kakala. Einnig að kynna útilistaverk Sigurðar Hansen, Sviðsetningu Haugsnesbardaga, sem er í nágrenni Kakalaskála, en sá bardagi átti sér stað þann 19. apríl 1246. Kakalaskála er enn sem fyrr ætlað að vera hluti af menningarflórunni í Skagafirði og styðja við aðra áfangastaði í nágrenninu. | |||
| Samtals | 76.340.123 kr. | ||
