21. ágúst 2026

Hjúkrunarfræðingur - HSN Blönduós

Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) á Blönduósi óskar eftir að ráða metnaðarfullan og jákvæðan hjúkrunarfræðing til starfa. Starfið býður upp á fjölbreytt verkefni þar sem unnið er með breiðan hóp þjónustuþega, auk góðra tækifæra til starfsþróunar og símenntunar í hlýlegu, styðjandi og uppbyggilegu starfsumhverfi.


Ráðningartími og starfshlutfall er skv. samkomulagi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.


Hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Blönduósi er samheldinn og öflugur hópur fagfólks sem leggur ríka áherslu á fagmennsku, jákvæð samskipti og gagnkvæma virðingu. Sérstök áhersla er lögð á vellíðan á vinnustað, árangursríka teymisvinnu og raunveruleg tækifæri til faglegra vaxta og þróunar í starfi.

Hér má sjá upplýsingar um HSN á Blönduósi: Fjölbreytt starfsemi og hlýtt starfsumhverfi

Hér má sjá upplýsingar um HSN í hnotskurn fyrir allar starfsstöðvar


Helstu verkefni og ábyrgð

  • Almenn hjúkrun og umönnun
  • Stuðningur, ráðgjöf og hjúkrunarmeðferð
  • þátttaka í teymisvinnu, umbótaverkefnum og að vinna að góðri liðsheild
  • Samstarf við aðra faghópa innan stofnunarinnar
  • Önnur tilfallandi verkefni


Hæfniskröfur

  • Fullgilt hjúkrunarpróf og íslenskt starfsleyfi
  • Íslenskukunnátta skilyrði
  • Reynsla er kostur en ekki skilyrði
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
  • Frábær samskiptahæfni, jákvæðni og sveigjanleiki
  • Reynsla og/eða áhugi á teymisstarfi
  • Faglegur metnaður og lausnamiðun
  • Gott orðspor og hreint sakavottorð


Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi á íslensku þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Með umsókn skal einnig fylgja afrit af prófskírteinum og starfsleyfi.

Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfstorg.is. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.


Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.


HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntun á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.

Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing.


Starfshlutfall er 30-100%

Umsóknarfrestur er til og með 21.08.2026



Nánari upplýsingar veitir

Viktoría Björk Erlendsdóttir

deildarstjóri

Tölvupóstur: viktoria.bjork.erlendsdottir@hsn.is

Sími: 432 4100

Helga Margrét Jóhannesdóttir

yfirhjúkrunarfræðingur svæðis

Tölvupóstur: helga.margret.johannesdottir@hsn.is

Sími: 432 4100