13. október 2026

Haustþing SSNV mótmælir hækkun kílómetragjalds og eldsneytisskatta

Haustþing Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, sem haldið var á Hótel Laugarbakka í Húnaþingi vestra 1. október sl., samþykkti ályktun þar sem hækkun kílómetragjalds á ökutæki og hækkun eldsneytisskatta er mótmælt. Að mati þingsins leggjast breytingarnar þyngra á íbúa landsbyggðarinnar en íbúa þéttbýlis. Þingið krefst þess að fjármála- og efnahagsráðuneytið dragi hækkun kílómetragjaldsins til baka og falli frá frekari hækkun eldsneytisskatta.


Einkabíllinn er eina raunhæfa samgöngutækið

Í ályktuninni er bent á að kílómetragjaldið sé lagt jafnt á alla bíleigendur óháð búsetu. Fjarlægðir til vinnu, skóla og grunnþjónustu eru hins vegar margfalt meiri í dreifbýli en í þéttbýli. Valkostir í almenningssamgöngum á svæðinu eru takmarkaðir eða engir. Fyrir stóran hluta íbúa er einkabíllinn því eina raunhæfa samgöngutækið og þeir eru sérstaklega berskjaldaðir fyrir gjaldahækkunum af þessu tagi.


Auknar álögur á meðan vegir eru í óviðunandi ástandi

Haustþingið telur sérstaklega óásættanlegt að auka álögur á akstur á meðan margir vegir á Norðurlandi vestra eru í óviðunandi ástandi og viðhaldi þeirra er ábótavant. Íbúar aka þessa vegi daglega og bera þann kostnað og þá áhættu sem slæmu ástandi þeirra fylgir. Þingið krefst þess að tekjur af gjaldtöku á umferð skili sér í tryggu fjármagni til viðhalds, vetrarþjónustu og aukins umferðaröryggis á svæðinu.


Kolefnisgjald hækkar þótt önnur gjöld falli niður

Um síðustu áramót voru vörugjöld og olíugjald á eldsneyti felld niður. Á sama tíma hækkar kolefnisgjald um 25% umfram almenna verðlagsþróun, og heildaráhrifin eru því hækkun á eldsneytiskostnaði. Í ályktuninni er jafnframt bent á hættu á að ávinningur af niðurfellingu eldri gjalda skili sér ekki að fullu til neytenda, þar sem eftirlit með því að olíufélög lækki verð til samræmis sé af skornum skammti.

Að mati þingsins eiga báðar breytingarnar það sameiginlegt að vera flöt gjaldtaka sem tekur ekkert tillit til búsetu. Því lenda þær margfalt þyngra á íbúum Norðurlands vestra, sem þurfa að aka lengri vegalengdir vegna dreifðrar búsetu og takmarkaðrar grunnþjónustu í heimabyggð. Í ályktuninni segir að búsetufrelsi á landsbyggðinni megi ekki skerðast vegna skattlagningar sem tekur ekki tillit til aðstæðna.


Kröfur haustþingsins

Haustþing SSNV krefst þess:

  • að fjármála- og efnahagsráðuneytið dragi til baka hækkun kílómetragjalds og falli frá frekari hækkun eldsneytisskatta,
  • að framvegis verði tekið mið af sérstöðu dreifbýlis við ákvarðanir um skattlagningu aksturs og eldsneytis, þar sem akstur er nauðsyn til að sækja vinnu, skóla og heilbrigðisþjónustu,
  • að álestur og innheimta kílómetragjalds verði áreiðanleg,
  • að virkt eftirlit verði haft með því að afnám annarra eldsneytisgjalda skili sér að fullu til neytenda.


Ályktuninni beint til ráðuneyta og Alþingis

Ályktuninni er beint til fjármála- og efnahagsráðuneytisins, sem fer með stefnumótun í skattamálum og ber ábyrgð á kílómetragjaldi, eldsneytisgjöldum og kolefnisgjaldi. Hún hefur einnig verið send fjárlaganefnd Alþingis og innviðaráðuneytinu, enda varða ákvarðanir um gjaldtöku á umferð beinlínis samgönguöryggi, viðhald vegakerfisins og búsetuskilyrði á Norðurlandi vestra.


Ályktunina í heild má lesa hér.