2. febrúar 2026

Fundargerð 135. fundar stjórnar SSNV, 3. febrúar 2026

Hér má nálgast fundargerð á pdf. 


Þriðjudaginn 24. mars 2026, kom stjórn SSNV saman til fundar á Skagaströnd. Hófst fundurinn kl. 9:00. 


Mætt voru: Einar E. Einarsson, Magnús Magnússon, Guðmundur Haukur Jakobsson, Álfhildur Leifsdóttir, Halldór Gunnar Ólafsson og Sveinbjörg R. Pétursdóttir framkvæmdastjóri sem ritaði fundargerð.   


Dagskrá:   


  1. Íslandsstofa
  2. Minnisblað frá Markaðsstofu Norðurlands um gönguleiðir
  3. Byggðagleraugu SSNV
  4. Ársreikningur SSNV
  5. Ársþing SSNV
  6. Þjónustukönnun - Fyrri hluti: vinnu- og þjónustusókn 
  7. Ársskýrsla SSNV
  8. Erindi frá Pétri Halldórssyni, heilbrigðisfulltrúa
  9. Framúrskarandi verkefni á Norðurlandi vestra
  10. Ályktanir ársþings SSNV
  11. Framlögð mál til kynningar

    a) Fundargerðir


    b) Umsagnir


12.  Skýrsla framkvæmdastjóra 

 


Afgreiðslur 


  1. Íslandsstofa 


Arnar Guðmundsson, viðskiptastjóri hjá Íslandsstofu, kom til fundar á Teams og kynnti verkefni á vegum Íslandsstofu þar sem unnið er að því að greina þær virðiskeðjur og fjárfestingartækifæri sem Ísland hefur raunhæfa samkeppnisstöðu í til framtíðar. Verkefnið felur í sér heildstæða kortlagningu á tækifærum til verðmætasköpunar og tengingu þeirra við mismunandi landshluta, innviði og styrkleika. 


Stjórn þakkar Arnari kærlega fyrir gagnlega og áhugaverða kynningu og góðar umræður um hvernig megi koma tækifærum Norðurlands vestra á framfæri í gegnum sameiginlega upplýsingagátt Íslandsstofu. Magnús Barðdal, verkefnastjóri SSNV, sat fundinn undir þessum lið. 


 


2. Minnisblað frá Markaðsstofu Norðurlands um gönguleiðir 


Lagt fram erindi frá Markaðsstofu Norðurlands um gönguleiðir á Norðurlandi vestra. 


Stjórn þakkar Markaðsstofu Norðurlands fyrir erindið. SSNV fór í átaksverkefni með skráningu gönguleiða árin 2020-2021 þar sem 94 leiðir voru skráðar, þ.e.a.s. grunnupplýsingar þeirra: GPS-punktar, myndir og texti, og eru þær nú hýstar á vefsíðunni WIKILOC sem væri ákjósanlegt að nýta. Framkvæmdastjóra falið að koma upplýsingum áleiðis til Markaðsstofunnar. 

 


3. Byggðagleraugu SSNV   


Stjórn SSNV veitir ár hvert viðurkenninguna Byggðagleraugun til ráðuneytis, stofnunar eða fyrirtæki sem þykir hafa skarað fram úr í fjölgun starfa/verkefna í landshlutanum eða með öðrum hætti stuðlað að uppbyggingu hans. Er viðurkenningunni ætlað að hvetja forsvarsmenn stofnana og fyrirtækja til að horfa með “byggðagleraugunum” á verkefni sinna eininga og nýta þau tækifæri sem gefast til flutnings starfa/verkefna á landsbyggðina í samræmi við áherslur byggðaáætlunar. 


Tillögur að handhafa Byggðagleraugnanna 2026 lagðar fyrir stjórn. 


Stjórn samþykkir tillögu að handhafa Byggðagleraugnanna og felur framkvæmdastjóra að hafa samband við viðkomandi í samræmi við umræður. Handhafi Byggðagleraugnanna verður tilkynntur formlega á ársþingi SSNV, miðvikudaginn 8. apríl, á Hótel Laugarbakka. 

 


4. Ársreikningur SSNV 


Helgi Níelsson, endurskoðandi hjá KPMG kom til fundar við stjórn og fór yfir ársreikning samtakanna fyrir árið 2025. 


Stjórn þakkar Helga fyrir greinargóða yfirferð á ársreikningnum. Stjórn samþykkir ársreikninginn og vísar til afgreiðslu ársþings. Matthías Rúnarsson, aðalbókari samtakanna, sat fundinn undir þessum lið. 


 

5. Ársþing SSNV 


Framkvæmdastjóri fór yfir drög að dagskrá fyrir ársþing SSNV. 


Stjórn þakkar fyrir yfirferðina og samþykkir framlagða dagskrá með áorðnum breytingum sem fram komu á fundinum. 


 

6. Þjónustukönnun - Fyrri hluti: vinnu- og þjónustusókn 


Byggðastofnun hefur birt nýja skýrslu um vinnu- og þjónustusókn íbúa landsins. Skýrslan byggir á þjónustukönnun sem framkvæmd var árið 2024 meðal tæplega sjö þúsund íbúa utan höfuðborgarsvæðisins og gefur ítarlega mynd af því hvar íbúarnir sækja vinnu og ýmsa þjónustu. Lagt fram til kynningar. 


 

7. Ársskýrsla SSNV 


Ársskýrsla SSNV fyrir árið 2025 lögð fram til kynningar fyrir stjórn. 


 

8. Erindi frá Pétri Halldórssyni, heilbrigðisfulltrúa 


Lagt fram til kynningar erindi frá Pétri Halldórssyni, heilbrigðisfulltrúa í kraganum. 


 

9. Framúrskarandi verkefni á Norðurlandi vestra 


Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra veita árlega viðurkenningar fyrir framúrskarandi verkefni sem fram hafa farið á Norðurlandi vestra árið áður. Viðurkenningar eru veittar í tveimur flokkum: 


 

a) Verkefni á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar 


b) Verkefni á sviði menningar 


Viðurkenningarnar geta fallið í hlut einstaklinga, hópa, félaga, fyrirtækja eða stofnana á Norðurlandi vestra fyrir framlag sitt í ofangreindum flokkum. Verkefnin einskorðast við að hafa fengið styrk úr uppbyggingarsjóði SSNV. 


Tillögur um framúrskarandi verkefni lagðar fyrir stjórn. 


Stjórn samþykkir framlagða tillögu að framúrskarandi verkefnum. Verkefnin verða kynnt á miðlum SSNV og fá viðurkenningu í samræmi við reglur fyrir framúrskarandi verkefni á Norðurlandi vestra. 


 

10. Ályktanir ársþings SSNV 


Lagðar fram tillögur að ályktunum fyrir ársþing SSNV 2026 sem bárust frá Húnabyggð.  Umræður stjórnar um önnur aðkallandi málefni til að leggja fyrir ársþing. 


Stjórn þakkar Húnabyggð fyrir þær tillögur sem bárust. Stjórn felur framkvæmdastjóra að vinna drög að ályktun um stöðu landshlutans. 


 

11. Framlögð mál til kynningar 


  a) Fundargerðir


Stjórn SSH, 16. febrúar 2026. Fundargerðin. Stjórn SSH, 2. mars 2026. Fundargerðin. 


Stjórn SSNE, 5. mars 2026. Fundargerðin. Stjórn SSA, 20. febrúar 2026. Fundargerðin. Stjórn SASS, 6. febrúar 2026. Fundargerðin. 


Stjórn SSS, 11. Mars 2026. Fundargerðin. 


Stjórn Markaðsstofu Norðurlands, 27. janúar 2026. Fundargerðin. 


 

  b) Umsagnir 


Frumvarp til laga um flýtingu uppbyggingar raforkuinnviða og einföldun regluverks. Mál nr. S-56/2026. Umsagnarfrestur er til og með 26. mars 2026. 


Tillaga til þingsályktunar um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Mál nr. 516/2026. Umsagnarfrestur er til og með 7. apríl 2026. 


 

Framkvæmdastjóra falið að vinna drög að umsögn um Frumvarp til laga um flýtingu uppbyggingar raforkuinnviða og einföldun regluverks. 


 

12. Skýrsla framkvæmdastjóra 


Skýrsla framkvæmdastjóra flutt munnlega. 


 

Fleira var ekki tekið fyrir. Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 12.26. 

 

Einar E. Einarsson, Álfhildur Leifsdóttir, Magnús Magnússon, Guðmundur Haukur Jakobsson, Halldór Gunnar Ólafsson og Sveinbjörg Rut Pétursdóttir.