6. maí 2025
Fundargerð 123. fundar stjórnar SSNV, 6. maí 2025
Hér má nálgast fundargerð á pdf.
Þriðjudaginn 6. maí 2025, kom stjórn SSNV saman til fundar á Teams. Hófst fundurinn kl. 9.30. Mætt voru: Einar E. Einarsson, Magnús Magnússon, Guðmundur Haukur Jakobsson, Álfhildur Leifsdóttir, Halldór Gunnar Ólafsson og Sveinbjörg R. Pétursdóttir framkvæmdastjóri sem ritaði fundargerð. Formaður lagði til við stjórn að bæta inn sem 7. lið á dagskrá; Áskorun frá sveitarfélögum á Norðurlandi, sem var samþykkt.
Dagskrá:
- Skipun í fulltrúaráð Brákar hses.
- Rekstur starfsstöðva SSNV
- Staða á áhersluverkefnum
- Framlag til landshlutasamtaka sveitarfélaga vegna umhverfistengdra verkefna
- Target Circular – Stefna SSNV
- Framlag til almenningssamganga – umsókn
- Áskorun frá sveitarfélögum á Norðurlandi
- Framlögð mál til kynningar
- Fundargerðir
- Umsagnir
- Skýrsla framkvæmdastjóra
Afgreiðslur
1. Skipun í fulltrúaráð Brákar hses.
Brák íbúðafélag hses. er húsnæðissjálfseignarstofnun sem stofnuð var árið 2022 af 31 sveitarfélagi með það að markmiði að stuðla að uppbyggingu hagkvæms leiguhúsnæðis á landsbyggðinni. SSNV á einn fulltrúa í fulltrúaráði félagsins sem stjórn SSNV skipar. Formaður fór yfir efni síðasta fundar.
Stjórn samþykkir að skipa Einar E. Eðvaldsson, formann SSNV, í fulltrúaráð Brákar íbúðafélag hses.
2. Rekstur starfsstöðva SSNV
Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir núverandi rekstri starfsstöðva SSNV ásamt því að fara yfir gildandi samninga við sveitarfélög varðandi greiðslur vegna aðstöðu fyrir eitt stöðugildi í hverri sýslu, en til að tryggja starfsstöðvar á hverju svæði hér áður greiddu sveitarfélögin sérstaklega vegna aðstöðu fyrir einn starfsmann. Stjórn samþykkir að sveitarfélögin hætti að greiða þessar greiðslur og kostnaður vegna aðstöðu verði hluti af rekstrarkostnaði SSNV.
3. Staða á áhersluverkefnum
Framkvæmdastjóri fór yfir framgang og stöðu þeirra verkefna sem tilgreind eru sem áhersluverkefni innan Sóknaráætlunar Norðurlands vestra. Farið var yfir stöðu einstakra verkefna, árangur sem náðst hefur og næstu skref. Lagt fram til kynningar.
4. Framlag til landshlutasamtaka sveitarfélaga vegna umhverfistengdra verkefna
Lagt fram til umræðu minnisblað um framlag til landshlutasamtaka sveitarfélaga vegna umhverfistengdra verkefna. Umræður fóru fram um mikilvægi verkefnanna og mögulega nýtingu fjármagns. Stjórn felur framkvæmdastjóra að ræða málefnið á sameiginlegum fundi sveitarstjóra í landshlutanum.
5. Target Circular – Stefna SSNV
Framkvæmdastjóri fór yfir Evrópuverkefnið Target Circular og hvað er framundan. Um er að ræða verkefni sem gengur m.a. út á að styrkja atvinnuráðgjafa í starfi sem skilar sér í bættari ráðgjöf til frumkvöðla. Rannsóknir sýna fram á að aðferðin skilar betri árangri hjá frumkvöðlum sem tileinka sér hana. Framkvæmdastjóri mun kynna aðferðina á vorfundi landshlutasamtaka og Byggðastofnunar síðar í vikunni fyrir atvinnuráðgjöfum annarra landshlutasamtaka. Lagt fram til kynningar.
6. Framlag til almenningssamgangna – umsókn
Innviðaráðherra hefur opnað fyrir umsóknir um framlög til verkefna á sviði almenningssamgangna, sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2022-2036, aðgerð A.10 - Almenningssamgöngur á milli byggða. Markmiðið er að styðja við áframhaldandi þróun almenningssamgangna milli byggða, m.a. til að tengja ýmsa sérakstursþjónustu við almenningssamgöngur. Til ráðstöfunar verða allt að 27 milljónir kr. Guðlaugur Skúlason, starfsmaður SSNV, fór yfir umsókn sem send var inn í nafni landshlutasamtakanna. Stjórn hafði samþykkt efni umsóknar áður en umsókn var send inn. Markmið verkefnisins er að bæta tengingar milli byggðarlaga og efla aðgengi að þjónustu, íþróttum, námi og atvinnu á Norðurlandi vestra, með tengingu við leið 57. Sótt er um styrk til þriggja ára fyrir tómstundastrætó Hvammstangi - Sauðárkrókur - Hvammstangi 2-3 sinnum í viku.
7. Áskorun frá sveitarfélögum á Norðurlandi
Lagt fram erindi frá Markaðsstofu Norðurlands um áskorun til stjórnvalda um aðkomu að markaðssetningu Akureyrarflugvallar og eflingu Flugþróunarsjóðs. Stjórn SSNV samþykkir samhljóða að skrifa undir áskorunina.
8. Framlögð mál til kynningar
a. Fundargerðir
Stjórn SSH, 7. apríl 2025. Fundargerðin.
Stjórn SSH, 14. apríl 2025. Fundargerðin.
Stjórn SSNE, 31. mars 2025. Fundargerðin.
Stjórn SASS, 4. apríl 2025. Fundargerðin.
Stjórn SSS, 9. apríl 2025. Fundargerðin.
Stjórn Vestfjarðarstofu, 9. apríl 2025. Fundargerðin.
Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga, 11. apríl 2025. Fundargerðin.
Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga, 4. apríl 2025. Fundargerðin.
Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga, 20. mars 2025. Fundargerðin.
Stjórn stýrihóps stjórnarráðs um byggðamál, 3. mars 2025. Fundargerðin.
Lagt fram til kynningar.
b. Umsagnir
Kerfisáætlun 2025-2034. Mál nr. 509/2025 í Skipulagsgátt. Umsagnarfrestur er til og með 31. maí 2025.
Framkvæmdastjóra falið að vinna drög að umsögn.
9. Skýrsla framkvæmdastjóra
Framkvæmdastjóri fór yfir helstu þætti í starfi sínu frá síðasta stjórnarfundi, þar á meðal fundi með KPMG og sveitarstjórum í Húnavatnssýslum varðandi loftslagsstefnu. Framkvæmdastjóri ræddi við Byggðastofnun um ívilnanaheimildir Menntasjóðs námsmanna á Skagaströnd og tók þátt í framkvæmdastjórafundi landshlutasamtaka. Þá var farið yfir viðburð með Markaðsstofu Norðurlands, Hæfnisetri Ferðaþjónustunnar og Samtökum ferðaþjónustunnar á Sauðárkróki, þar sem framkvæmdastjóri var fundarstjóri. Einnig var rætt um þátttöku SSNV í allsherjar-og menntamálanefnd Alþingis um frumvarp til laga um sýslumann, þátttöku á hádegisfundi Markaðsstofu Norðurlands á Hótel Laugarbakka undir yfirskriftinni „Samstaða um markaðsmál“ og opin fund hjá Landsneti um Kerfisáætlun Landsnets. Skýrsla framkvæmdastjóra var flutt munnlega.
Fleira var ekki tekið fyrir. Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 11.47.
Einar E. Einarsson, Álfhildur Leifsdóttir, Magnús Magnússon, Guðmundur Haukur Jakobsson, Halldór Gunnar Ólafsson og Sveinbjörg Rut Pétursdóttir.