1. apríl 2025

Fundargerð 122. fundar stjórnar SSNV, 1. apríl 2025

Hér má nálgast fundargerð á pdf.


Þriðjudaginn 1. apríl 2025, kom stjórn SSNV saman til fundar í Húnabyggð. Hófst fundurinn kl. 10.30.


Mætt voru: Einar E. Einarsson, Magnús Magnússon, Guðmundur Haukur Jakobsson, Álfhildur Leifsdóttir, Halldór Gunnar Ólafsson og Berglind Björnsdóttir. Sveinbjörg R. Pétursdóttir framkvæmdastjóri sat fundinn í fjarfundarbúnaði og ritaði fundargerð.


Dagskrá:


  1. Fjárfestingaverkefni á Norðurlandi vestra
  2. 33. ársþing SSNV
  3. Markaðsstofa Norðurlands
  4. Stafrænt ráð
  5. Framlag til almenningssamgangna - umsókn
  6. Framlögð mál til kynningar
  7. Fundargerðir
  8. Umsagnir
  9. Skýrsla framkvæmdastjóra


Afgreiðslur


1. Fjárfestingaverkefni á Norðurlandi vestra


Magnús Bardal, verkefnastjóri fjárfestinga, kom til fundar og fór yfir stöðu og horfur á ýmsum verkefnum á Norðurlandi vestra sem unnið er að m.a. af starfsmönnum SSNV. Stjórn þakkar Magnúsi greinargóða yfirferð.


2. 33. Ársþing SSNV


Lögð fram drög að dagskrá ársþings, skipulagi, tillögum og ályktunum SSNV sem haldið verður 9. apríl 2025 í Gránu í Skagafirði.


Stjórn felur framkvæmdastjóra að vinna áfram að dagskrá þingsins í samræmi við umræður á fundinum og að senda hana út til þingfulltrúa ásamt öðrum gögnum þingsins.


3. Markaðsstofa Norðurlands


Framkvæmdastjóri fór yfir helstu mál Markaðsstofunnar.


4. Stafrænt ráð


Álfhildur Leifsdóttir fulltrúi SSNV í Stafrænu ráði sveitarfélaga fór yfir helstu störf ráðsins.


Stjórn SSNV þakkar Álfhildi fyrir greinargóða yfirferð.


5. Framlag til almenningssamgangna - umsókn


Innviðaráðherra hefur opnað fyrir umsóknir um framlög til verkefna á sviði almenningssamgangna, sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2022-2036, aðgerð A.10 - Almenningssamgöngur á milli byggða. Markmiðið er að styðja við áframhaldandi þróun almenningssamgangna milli byggða, m.a. til að tengja ýmsa sérakstursþjónustu við almenningssamgöngur. Til ráðstöfunar verða allt að 27 milljónir kr. Framkvæmdastjóri fer yfir mögulega umsókn.


Stjórn samþykkir að fela framkvæmdastjóra að sótt verði um framlag til eflingar á almenningssamgöngum á Norðurlandi vestra, drög að umsókn verði kynnt á næsta stjórnarfundi.


6. Framlögð mál til kynningar


a. Fundargerðir

Stjórn SSH, 17. mars 2025. Fundargerðin. Stjórn SASS, 7. mars 2025.

Fundargerðin.

Stjórn SSNE, 17. mars 2025. Fundargerðin.

Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga, 11. mars 2025. Fundargerðin.


b. Umsagnir


Frumvarp til laga um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun, nr. 160/2011. Mál nr. 176/2025. Umsagnarfrestur er til og með 8. apríl 2025.


Frumvarp til laga um náttúruvernd o. fl. (gjaldtaka o. fl. vegna Náttúruverndarstofnunar). Mál nr. 214/2025. Umsagnarfrestur er til og með 8. apríl 2025.


Tillaga til þingsályktunar um endurskoðun á reglum um endurgreiðslu ferðakostnaðar sjúklinga. Mál nr. 143/2025. Umsagnarfrestur er til og með 8. apríl 2025.


Frumvarp til laga um sýslumann. Mál nr. 186/2025. Umsagnarfrestur er til og með 8. apríl 2025.


Framkvæmdastjóra falið að vinna drög að umsögn um frumvarp til laga um sýslumann.


Annað lagt fram til kynningar.


7. Skýrsla framkvæmdastjóra


Skýrsla framkvæmdastjóra flutt munnlega.


Fleira var ekki tekið fyrir. Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 12.41.

Einar E. Einarsson, Álfhildur Leifsdóttir, Magnús Magnússon, Guðmundur Haukur Jakobsson, Halldór Gunnar Ólafsson, Sveinbjörg Rut Pétursdóttir, og Berglind Björnsdóttir.