18. mars 2025
Fundargerð 121. fundar stjórnar SSNV, 18. mars 2025
Hér má nálgast fundargerð á pdf.
Þriðjudaginn 18. mars 2025, kom stjórn SSNV saman til fundar á Teams. Hófst fundurinn kl. 9.30.
Mætt voru: Einar E. Einarsson, Magnús Magnússon, Guðmundur Haukur Jakobsson, Álfhildur Leifsdóttir, Halldór Gunnar Ólafsson og Katrín M. Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri sem ritaði fundargerð.
Dagskrá:
- Ráðning framkvæmdastjóra
- Ársreikningur fyrir árið 2024
- Ársskýrsla fyrir árið 2024
- Framlögð mál til kynningar
- Fundargerðir
- Umsagnir
- Skýrsla framkvæmdastjóra
Afgreiðslur
1. Ráðning framkvæmdastjóra
Formaður kynnir stöðu málsins og leggur fram tillögu í samræmi við umræður síðasta fundar.
Tillaga formanns er að ráða Sveinbjörgu Rut Pétursdóttur verkefnastjóra hjá SSNV í starf framkvæmdastjóra tímabundið til 1. september 2026. Stjórn samþykkir einróma tillögu formanns, en að afloknum sveitarstjórnarkosningum vorið 2026 mun ný stjórn SSNV auglýsa stöðuna. Formanni er falið að ganga frá tímabundnum samningi við Sveinbjörgu.
Sveinbjörg Rut hefur starfað á vettvangi landshlutasamtakanna í tíu ár og á farsælan feril að baki. Sveinbjörg hefur masterspróf í alþjóðaviðskiptum og hefur mikla þekkingu á starfi SSNV. Prófkúra framkvæmdastjóra færist því yfir á Sveinbjörgu Rut ásamt annarri ábyrgð, hlutverki og verkefnum sem eru á borði framkvæmdastjóra. Gert er ráð fyrir að Sveinbjörg hefji störf strax.
2. Ársreikningur SSNV fyrir árið 2024
Sigríður Ellen Arnardóttir, endurskoðandi hjá KPMG kom til fundar við stjórn og fór yfir ársreikning samtakanna fyrir árið 2024. Stjórn samþykkir ársreikninginn og vísar til afgreiðslu ársþings.
Sveinbjörg Rut Pétursdóttir kom til fundar undir þessum lið. Sigríður Ellen Arnardóttir, endurskoðandi hjá KPMG vék af fundi að þessum lið loknum.
3. Ársskýrsla SSNV fyrir 2024
Framkvæmdastjóri fer yfir ársskýrslu samtakanna fyrir árið 2024. Stjórn samþykkir ársskýrsluna og vísar til afgreiðslu ársþings.
4. Framlögð mál til kynningar
a. Fundargerðir
Stjórn SSH, 3. mars 2025. Fundargerðin. Stjórn SASS, 7. mars 2025.
Fundargerðin.
Stjórn SSNE, 5. febrúar 2025. Fundargerðin.
Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga, 28. febrúar 2025. Fundargerðin.
Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga, 25. febrúar 2025. Fundargerðin.
Stjórn stýrihóps stjórnarráðs um byggðamál, 2. desember 2024. Fundargerðin. Stjórn stýrihóps stjórnarráðs um byggðamál, 3. febrúar 2024. Fundargerðin.
b. Umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um skipulag haf-og strandsvæða og skipulagslögum (svæðisráð o.fl.). Mál nr. 147/2025. Umsagnarfrestur er til og með 27. mars 2025.
Frumvarp til laga um búvörulög (framleiðendafélög). Mál nr. 107/2025.
Umsagnarfrestur er til og með 25. mars 2025.
Drög að reglugerð um breytingu á reglugerð um strandveiðar. Mál nr.
460/2024. Umsagnarfrestur er til og með 20. mars 2025.
5. Skýrsla framkvæmdastjóra
Skýrsla framkvæmdastjóra flutt munnlega.
Fleira var ekki tekið fyrir. Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 10.41.
Einar E. Einarsson, Álfhildur Leifsdóttir, Magnús Magnússon, Guðmundur Haukur Jakobsson, Halldór Gunnar Ólafsson, Sveinbjörg Rut Pétursdóttir, og Katrín M. Guðjónsdóttir.