21. ágúst 2026
Deildarstjóri á hjúkrunardeild - HSN Blönduósi
Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) á Blönduósi auglýsir lausa stöðu deildarstjóra hjúkrunardeildar. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. október 2026 eða eftir samkomulagi. Deildarstjóri ber faglega, stjórnunarlega og rekstrarlega ábyrgð á hjúkrun á hjúkrunarsviði og gegnir lykilhlutverki í að tryggja öfluga þjónustu, fagmennsku og vellíðan skjólstæðinga og starfsfólks. Starfið felur meðal annars í sér leiðtoga- og mannauðshlutverk, þróun þjónustu og virka þátttöku í gæðastarfi og umbótum. Næsti yfirmaður deildarstjóra er yfirhjúkrunarfræðingur svæðis á Blönduósi.
Á hjúkrunardeild eru samreknar þrjár deildir. Deild A sem er blönduð sjúkra- og hjúkrunardeild, deild B sem er hjúkrunardeild og svo dvalardeild. Rýmin eru samtals 34.
HSN leggur áherslu á jákvætt og styðjandi starfsumhverfi þar sem fagþekking, samvinna og metnaður til þróunar þjónustunnar eru í fyrirrúmi.
Möguleiki er á aðstoð við útvegun húsnæðis.
Hér má sjá upplýsingar um HSN á Blönduósi: Fjölbreytt starfsemi og hlýtt starfsumhverfi
Hér má sjá upplýsingar um HSN í hnotskurn fyrir allar starfsstöðvar
Helstu verkefni og ábyrgð
- Fagleg ábyrgð á hjúkrunarþjónustu sem veitt er á hjúkrunarsviði
- Dagleg stjórnun og rekstur hjúkrunardeildar
- Almenn mannauðsmál s.s. leiðsögn, stuðningur og fagleg uppbygging starfsfólks
- Tryggja að rekstur og starfsmannamál séu í samræmi við fjárhagsáætlun
- Skipulagning vakta og mannafla
- Þátttaka í klínísku starfi
- Efling jákvæðra vinnustaðamenningar og samstarfs
- Ábyrgð á gæðum þjónustu og innleiðingu verklags og umbóta
- Þátttaka í þróunarverkefnum og stefnumótun deildar
- Virk teymisvinna og samstarf þvert á fagstéttir og stofnun
Hæfniskröfur
- Íslenskt hjúkrunarleyfi og a.m.k. 5 ára starfsreynsla við hjúkrun
- Viðbótarmenntun á sviði heilbrigðisvísinda eða stjórnunar er kostur
- Reynsla af stjórnun eða sambærilegu starfi er kostur
- Sterk leiðtogahæfni
- Frábær samskiptahæfni og jákvætt viðmót
- Frumkvæði, góð skipulagshæfni og lausnamiðuð nálgun
- Drífandi og faglegur metnaður
- Þekking á RAI-mati er kostur
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Hreint sakavottorð og gott orðspor
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi á íslensku þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Með umsókn skal einnig fylgja afrit af prófskírteinum.
Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfstorg.is. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.
Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.
Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 01.09.2026
Nánari upplýsingar veitir
Helga Margrét Jóhannesdóttir
yfirhjúkrunarfræðingur svæðis
Tölvupóstur: helga.margret.johannesdottir@hsn.is
Sími: 432 4133
Viktoría Björk Erlendsdóttir
deildarstjóri
Tölvupóstur: viktoria.bjork.erlendsdottir@hsn.is
Sími: 432 4984