Áhersluverkefni 2025 -2026
Heiti verkefnis
Ungt fólk á Norðurlandi vestra
Númer verkefnis
2025-03
Markmið
Skapa vettvang fyrir ungt fólk til að tjá skoðanir sínar og ræða málefni sem brenna á því, valdefla og efla tengslanet. Markmiðið er að tengja saman ungt fólk í landshlutanum og fá rödd þeirra inn í stefnumótun svæðisins.
Stutt verkefnalýsing
Haldin verða ungmennaþing þar sem markhópurinn er 13-18 ára. Í framhaldi verður stofnað ungmennaráð í landshlutanum og haldið utan um vinnu þess. Ungmennin aðstoða við gerð samskiptastefnu og koma með hugmyndir að leiðum við innleiðingu hennar. Viðfangsefni ungmennaþinganna eru tengd þörfum samfélagsins hverju sinni.
Lokaafurð
Vinna ungmennanna á þinginu nýtist við gerð samskiptastefnu. Rödd þeirra heyrist við gerð og innleiðingu þessarar mikilvægu stefnu. Ávinningur verkefnisins felst í enn betri samskiptum unga fólksins í landshlutanum og sýnileika þeirra innan samfélagsins.
Framkvæmdaraðili
SSNV - verkefnastjórn
Samstarfsaðilar
Sveitarfélög á svæðinu, tómstundafulltrúar, skólar, ungmennaráð og aðilar á svæðinu tengdir málefnum svæðis verða kallaðir til þegar við á.
Upphaf og lok verkefnis
01-02-2025 - 31-12-2027
Tengsl við meginmarkmið sóknaráætlunar
Lykilmálaflokkur 01 – Samvinna, jákvæðni og bjartsýni.
Lykilmálaflokkur 02 – Góður staður til að búa á.
Tengsl við aðrar opinberar áætlanir
Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna: Ísland hefur fullgilt Barnasáttmálann og skuldbundið sig til að tryggja rétt barna og ungmenna til að taka þátt í ákvörðunum sem hafa áhrif á líf þeirra. Ungmennaþing og ungmennaráð eru skýr dæmi um að skapa vettvang fyrir ungt fólk til að hafa áhrif.