Áhersluverkefni 2025 -2026

Heiti verkefnis

TextílLab á Blönduósi


Númer verkefnis


2025-13

Markmið


Að styðja áfram við uppsetningu og rekstur stafrænnar smiðju Textílmiðstöðvarinnar á Blönduósi.

Stutt verkefnalýsing

Unnið verði með smiðjunni að því að auka nýtingu á aðstöðunni með það fyrir augum að auka nýsköpun á svæðinu með tilliti til textíls og aukinnar fullvinnslu íslenskrar ullar. Um leið er stutt við stofnun Textílklasa á Norðurlandi vestra.


Lokaafurð

Ávinningur samfélagsins felst í aukinni stafrænni færni íbúa, fjölgun atvinnutækifæra og aukinni nýsköpun. Einnig aukinni verðmætasköpun með fullvinnslu afurða landbúnaðarins og aukin nýting TextílLabs á Blönduósi. Tilurð Textílklasa á Norðurlandi vestra.


Framkvæmdaraðili


Textílmiðstöð Íslands

Samstarfsaðilar

SSNV, aðrar Fab-lab smiðjur, ullarframleiðendur, Ístex o.fl.

Upphaf og lok verkefnis

01.02.2026 – 31.12.2026

Framlag úr sóknaráætlun

2.000.000 kr.

Tengsl við meginmarkmið sóknaráætlunar


Lykilmálaflokkur 02 – Góður staður til að búa á.

Lykilmálaflokkur 03 – Aukin nýsköpun og fjölbreytt atvinnulíf.

Tengsl við aðrar opinberar áætlanir


Nýsköpunarlandið Ísland, kaflinn um umgjörð: Íslenskir frumkvöðlar og hugvitsfólk hafi aðgang að stafrænum smiðjum og standi þeim til boða aðstaða til að smíða frumgerðir og gera tilraunir með framleiðsluhugmyndir. Slík aðstaða standi sem flestum landsmönnum til boða, óháð búsetu og þar séu til staðar hæfir leiðbeinendur.

Landbúnaðarstefnan Ræktum Ísland; áhersla á aukna fullvinnslu afurða.

Stefnuyfirlýsing ríkisstjórnarinnar, 10. gr.: Áfram verður stutt við vöxt hugverkaiðnaðar, nýsköpunar og tækni.

Aðgerðaáætlun í loftslagsmálum.

Byggðaáætlun: Nýsköpunarhæfni samfélaga og áhersla á frumkvöðlastarfsemi og græn störf verði aukin um allt land með áherslu á að styrkja stoðkerfi og innviði nýsköpunar, stafræna þróun, þekkingaruppbyggingu og greiðara aðgengi að mörkuðum og fjármagni.