Áhersluverkefni 2025 -2026

Heiti verkefnis

Sýnileiki viðburða á Norðurlandi vestra


Númer verkefnis


2025-05

Markmið


Að íbúar, fyrirtæki og viðburðahaldarar hafi aðgang að opnum vefmiðli til að auglýsa viðburði á Norðurlandi vestra, sem gerir íbúum kleift að sjá hvað er í gangi hverju sinni á svæðinu.

Stutt verkefnalýsing

Verkefnið snýst um að bæta aðgengi íbúa landshlutans að upplýsingum um viðburði á svæðinu í gegnum einn vef (vefsvæði) með það í huga að auka þátttöku í þeim viðburðum sem bjóðast og auka sýnileika þess sem í boði er í landshlutanum.


Lokaafurð

Vefsvæði sem tekur við og miðlar upplýsingum um viðburði í

landshlutanum að fyrirmynd https://www.visir.is/vidburdir

Þannig aukast möguleikar íbúa landshlutans á að njóta þess fjölbreytta

menningarframboðs sem býðst, viðburðahaldarar njóta einnig góðs af

og styrki starfsemi sína enn frekar.


Framkvæmdaraðili


SSNV

Samstarfsaðilar

Samstarf við vefmiðil sem íbúar svæðis þekkja vel til

Upphaf og lok verkefnis

01-02-2025 - 31-12-2027

Tengsl við meginmarkmið sóknaráætlunar


Lykilmálaflokkur 01 – Samvinna, jákvæðni og bjartsýni.

Lykilmálaflokkur 02 – Góður staður til að búa á.

Tengsl við aðrar opinberar áætlanir


Menningarstefna – menningarþátttaka, aðgengi og samvinna í menningarmálum.