Áhersluverkefni 2025 -2026
Heiti verkefnis
Starfamessa
Númer verkefnis
2025-11
Markmið
Að sýna fjölbreytt framboð starfa í landshlutanum og kynna fyrir ungu fólki. Markmiðið er að opna augu þeirra fyrir möguleikum sem hér bjóðast að námi loknu.
Stutt verkefnalýsing
Lokaafurð
Haldinn verði viðburður sem leiðir saman skóla og atvinnulíf til að kynna fyrir ungu fólki starfa- og námsframboð á svæðinu, með það að markmiði að því finnist það spennandi kostur að flytja aftur hingað að námi loknu.
Ungt fólk sér hvernig menntun getur nýst þeim á heimaslóðum í framtíðinni.
Framkvæmdaraðili
SSNV
Samstarfsaðilar
Háskólar, FNV, grunnskólar og fyrirtæki á svæðinu
Upphaf og lok verkefnis
01.02.2025 – 31.12.2025
Framlag úr sóknaráætlun
2.000.000 kr.
Tengsl við meginmarkmið sóknaráætlunar
Lykilmálaflokkur 02 – Góður staður til að búa á.
Lykilmálaflokkur 03 – Aukin nýsköpun og fjölbreytt atvinnulíf.
Tengsl við aðrar opinberar áætlanir
Nýsköpunarlandið Ísland.
Byggðaáætlun, III. Sérstök áhersla verði lögð á svæði sem búa við langvarandi fólksfækkun, atvinnuleysi og einhæft atvinnulíf.