Áhersluverkefni 2025 -2026
Heiti verkefnis
Smáframleiðendur
Númer verkefnis
2025-10
Markmið
Stutt verkefnalýsing
Verkefnið hefur að markmiði að efla starfsskilyrði smáframleiðenda á Norðurlandi vestra og styðja við nýliðun í greininni. Smáframleiðendur standa frammi fyrir miklum áskorunum vegna aukinna eftirlitskrafna sem geta orðið þeim þungbærar og dregið úr rekstrarhæfi. Verkefnið felst í því að skapa vettvang fyrir samráð milli smáframleiðenda, eftirlitsstofnana og annarra hagaðila.
Hluti verkefnisins er að halda viðburð þar sem hagaðilar koma saman með smáframleiðendum. Viðburðurinn miðar að því að auka skilning og finna lausnir sem gera smáframleiðslu sjálfbæra og samkeppnishæfa.
Auk þess verður fræðsla fyrir þá sem hafa áhuga á að hefja smáframleiðslu.
Verkefnið nýtir sterkt tengslanet á svæðinu, t.d. innan samtaka smáframleiðenda, Beint frá býli og Slow Food, til að tryggja árangur. Með þessu er stuðlað að eflingu smáframleiðslu, nýsköpun og svæðisbundinni matvælaframleiðslu á Norðurlandi vestra.
Lokaafurð
Lokaafurð verkefnisins er viðburður með smáframleiðendum og öðrum hagaðilum á landinu öllu.
Ávinningur verkefnisins mælist í fjölgun smáframleiðenda á svæðinu, bættum rekstrarskilyrðum og sterkara tengslaneti framleiðenda.
Framkvæmdaraðili
SSNV
Samstarfsaðilar
Samtök smáframleiðenda, Slow Food, Beint frá býli
Upphaf og lok verkefnis
01.02.2025 – 31.12.2026
Framlag úr sóknaráætlun
2.000.000 kr.
Tengsl við meginmarkmið sóknaráætlunar
Lykilmálaflokkur 03 – Aukin nýsköpun og fjölbreytt atvinnulíf.
Lykilmálaflokkur 04 – Sjálfbær landshluti.
Tengsl við aðrar opinberar áætlanir
Nýsköpunarlandið Ísland.
Aðgerðaáætlun í loftslagsmálum.
Stefnuyfirlýsing ríkisstjórnarinnar, 12. gr.: Gripið verður til aðgerða til að efla nýsköpun í landbúnaði.
Byggðaáætlun: Efla atvinnuþróun og sjálfbæra nýsköpun á landsbyggðinni sem stuðlar að fjölbreyttari atvinnutækifærum og samfélagsþróun. Stuðlað verði að eflingu hringrásarhagkerfisins um land allt með áherslu á græna atvinnuuppbyggingu, staðbundna styrkleika og aukna fullvinnslu í héraði. Matvælastefna Íslands: Verkefnið styður við áherslur í matvælastefnu, þar á meðal að efla framleiðslu á öruggum og heilnæmum matvælum, styðja smáframleiðendur og auka sjálfbærni í matvælaframleiðslu. Stefna Íslands um sjálfbæra þróun: með því að stuðla að svæðisbundinni matvælaframleiðslu sem eykur sjálfbærni, dregur úr hindrunum fyrir smáframleiðendur og hvetur til nýsköpunar, sem samræmist markmiðum um ábyrga framleiðslu, samfélagsþróun og efnahagslega sjálfbærni.