Áhersluverkefni 2025 -2026

Heiti verkefnis

Skíðasvæðið Norðurland vestra


Númer verkefnis


2025-14

Markmið


Að efla skíðasvæði Norðurlands vestra og horfa á þróun svæðis með ævintýraferðamennsku í huga sem nær yfir lengra tímabil en vetrarmánuði, dæmi um þetta væru fjallahjóla- og gönguleiðir.

Stutt verkefnalýsing

Skíðasvæðið í Tindastól er eina skíðasvæðið á Norðurlandi vestra og er mikilvægt aðdráttarafl ferðamanna á vetrarmánuðum. Rík áhersla er á aukna vetrarferðaþjónustu á svæðinu og spilar skíðasvæðið þar mikilvægt hlutverk til að festa ferðaþjónustu í sessi sem heilsársatvinnugrein. Unnið verði með hagsmunaaðilum að því að auka nýtingu á aðstöðu Skíðasvæðisins með það að markmiði að efla vetrarferðamennsku.

Jafnframt er skíðasvæðið mikilvægur liður í að tryggja aðgengi að fjölbreyttri íþróttaiðkun, bæta búsetuskilyrði íbúa og stuðla að heilsueflandi samfélagi.

Jafnframt verður unnið með þau tækifæri sem svæðið hefur upp á að bjóða yfir sumarmánuðina. En Tindastóll býður upp á fjölbreyttar göngu- og hjólaleiðir. Vinna þarf tækifæragreiningu varðandi slíka þjónustu sem myndi tryggja betri nýtingu á þeim innviðum sem fyrir eru. Leitað verður til aðila utan svæðis sem gera út á göngu- og hjólaferðir og kannað grundvöll til að markaðsetja svæðið fyrir hópa sem leita af útivist í fallegu umhverfi sem býður upp á einstakt útsýni yfir Skagafjörð.


Lokaafurð

Verkefnið skapar fleiri tækifæri til útivistar og hreyfingar fyrir fólk á öllum aldri, sem stuðlar að betri líkamlegri og andlegri heilsu.

Tryggt aðgengi íbúa og ferðamanna að skíðasvæðinu.

Verkefnið styrkir öfluga heilsársferðaþjónustu með fjölgun gistinátta á ársgrundvelli og sterkari rekstrargrundvelli veitinga- og þjónustuaðila á svæðinu.


Framkvæmdaraðili


SSNV og sveitarfélög á Norðurlandi vestra

Samstarfsaðilar

Svæðisskrifstofa UMFÍ og ÍSÍ á Norðurlandi vestra og U.M.F. Tindastóll

Upphaf og lok verkefnis

01.02.2025 – 31.12.2026

Framlag úr sóknaráætlun

4.000.000 kr.

Tengsl við meginmarkmið sóknaráætlunar


Lykilmálaflokkur 02 – Góður staður til að búa á.

Lykilmálaflokkur 03 – Aukin nýsköpun og fjölbreytt atvinnulíf.

Tengsl við aðrar opinberar áætlanir


Heilsueflandi samfélag.

Byggðaáætlun.

Velkomin, Ferðamálastefna og aðgerðir til ársins 2030, Upplifun gesta þar sem lögð er áhersla á að þróa áfangastaði með áherslu á staðbundna sérstöðu og sjálfbærni.