Áhersluverkefni 2025 -2026
Heiti verkefnis
Skemmtiferðaskip á Norðurlandi vestra – samstarf, skipulag og markaðssókn
Númer verkefnis
2026-07
Markmið
Stutt verkefnalýsing
Auka þarf samstarf og bæta skipulag við móttöku farþega skemmtiferðaskipa á Norðurlandi með það að markmiði að auka verðmætasköpun ferðaþjónustuaðila og sveitarfélaga auk þess að efla þjónustu við skipafélög og farþega. Verkefnið er tvíþætt:
a) Áfangastaðaþróun, þar sem gerð verður greining á stöðu innviða, þjónustu og möguleikum fyrir skemmtiferðaskip í landshlutanum.
b) Markaðssókn með áherslu á minni leiðangursskip, fjölgun komuhafna og skipakoma og lengingu ferðatímabilsins, þar sem áhersla verður lögð á að kynna áhugaverða áfangastaði fyrir gestum.
Helstu verkþættir eru efling samstarfs hagaðila um þróun og markaðssetningu gagnvart skipafélögum og ferðaskrifstofum, greining á fýsileika valkosta fyrir markaðssamstarf, samantekt upplýsinga um innviði og þjónustuframboð, greining á áfangastöðum, markaðsgreining sem grundvöllur þriggja ára markaðsáætlunar og samræmt kynningarefni fyrir áfangastaði og hafnir.
Lokaafurð
Framkvæmdaraðili
Markaðsstofa Norðurlands
Samstarfsaðilar
Sveitarfélög og hafnarsamlög á Norðurlandi vestra, ferðaþjónustufyrirtæki á svæðinu, Ferðamálastofa, Íslandsstofa, AECO (samtök leiðangursskipa) og Cruise Iceland.
Upphaf og lok verkefnis
01.01.2026 – 31.12.2027
Framlag úr sóknaráætlun
1.500.000 kr. (árið 2026)