Áhersluverkefni 2025 -2026

Heiti verkefnis

Sjálfbær landshluti - Eimur


Númer verkefnis


2025-17

Markmið


Markmið með verkefninu er að bæta nýtingu auðlinda á Norðurlandi vestra með verðmætasköpun, sjálfbærni og nýsköpun að leiðarljósi.

Stutt verkefnalýsing

Ætlunin með Eim er að leiða saman aðila sem geta unnið saman við það að afla alþjóðlegs fjármagns til tilrauna, rannsókna og þróunar á orku- og loftslagsvænum lausnum.

Með nýjum tækifærum og auknu samstarfi á milli fyrirtækja og opinberra aðila er hægt að ýta undir að verkefni og tækifæri sem skapast á svæðinu þróist í átt að hringrásarhagkerfi, þar sem verðmætasköpun úr vannýttu hráefni er aukin, bæði úr því sem er til staðar og því sem verður til vegna nýrra verkefna eða framleiðslu.

Meðal viðfangsefna eru fjölnýting jarðvarma, orkuskipti, innleiðing hringrásarhagkerfis í iðnaði og öflugur stuðningur við nýsköpun.


Lokaafurð

Að Eimur sinni fjölmörgum verkefnum sem öll snúa að bættri nýtingu auðlinda á svæðinu sem hafa ekki bara skapað aukin verðmæti heldur störf.


Framkvæmdaraðili


SSNV

Samstarfsaðilar

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, Landsvirkjun, Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra, Norðurorka og Orkuveita Húsavíkur.

Upphaf og lok verkefnis

01.02.2025 – 31.12.2026

Framlag úr sóknaráætlun

10.000.000 kr.

Tengsl við meginmarkmið sóknaráætlunar


Lykilmálaflokkur 03 – Aukin nýsköpun og fjölbreytt atvinnulíf.

Lykilmálaflokkur 04 – Sjálfbær landshluti.

Tengsl við aðrar opinberar áætlanir


Stefnuyfirlýsing ríkisstjórnarinnar, 7. gr.

Nýsköpunarlandið Ísland

Aðgerðaáætlun í loftslagsmálum