Áhersluverkefni 2025 -2026
Heiti verkefnis
Sjálfbær landshluti
Númer verkefnis
2025-12
Markmið
Stutt verkefnalýsing
Fyrir liggur aðgerðaáætlun sveitarfélaga á Norðurlandi vestra í loftlagsmálum 2024-2028 sem unnin var að KPMG og er verkefni þessu ætlað að styðja við sveitarfélögin að taka fyrstu skref við innleiðingu á þeim þáttum sem þar koma fram.
Starfsfólk SSNV heldur utan um fræðslu um umhverfismál. Stendur bæði fyrir fyrirlestrum og birtir efni á vef samtakanna með það fyrir augum að vekja fólk til umhugsunar um málaflokkinn.
Lokaafurð
Innleiðing á aðgerðaráætlun í loftlagsmálum er hafin.
Fróðleik um umhverfismál er miðlað til íbúa í landshlutanum með markvissum hætti.
Ávinningur gæti birst í minni urðun, lægri rekstrarreikningi og minni orkunotkun og almennt aukinni vitund íbúa og fyrirtækja á umhverfismálum.
Framkvæmdaraðili
SSNV
Samstarfsaðilar
Upphaf og lok verkefnis
01.02.2025 – 31.12.2026
Framlag úr sóknaráætlun
2.186.219 kr.
Tengsl við meginmarkmið sóknaráætlunar
Lykilmálaflokkur 01 – Samvinna, jákvæðni og bjartsýni.
Lykilmálaflokkur 04 – Sjálfbær landshluti.
Tengsl við aðrar opinberar áætlanir
Stefnuyfirlýsing ríkisstjórnarinnar, 7. gr.: Með markvissum loftslagsaðgerðum svo að Ísland nái kolefnishlutleysi fyrir árið 2040 og verði áfram í fremstu röð í baráttu gegn hnattrænni hlýnun.
Aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum: Þ.2.c. Samfélagsvitund: Til að virkja samfélagið allt í þágu loftslagsmála og orkuskipta er mikilvægt að upplýsingar séu aðgengilegar og á skiljanlegu máli.